Innlent

Ætlaði að gista hjá meintum árásarmanni

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Árásin var gerð í Borgarnesi mánudagskvöldið 19. október.
Árásin var gerð í Borgarnesi mánudagskvöldið 19. október. Vísir/Egill

Karlmaður á sextugsaldri var fluttur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítala tveimur dögum eftir að hann varð fyrir líkamsárás í Borgarnesi í síðustu viku. Í ljós kom að lunga hans hafði fallið saman og ástand hans var metið „alvarlegt og lífshættulegt“. Þá tjáði maðurinn lögreglu á vettvangi árásarinnar að hann hefði verið í heimsókn hjá meintum árásarmanni og ætlað að gista hjá honum en sá síðarnefndi þá skyndilega ráðist á sig.

Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði Héraðsdóms Vesturland yfir meintum árásarmanni frá 22. október. Þar segir að þegar lögregla kom að vettvangi árásarinnar að kvöldi mánudagsins 19. október hafi þolandi verið fyrir utan húsið, „mjög blóðugur í andliti og haldið um brjóstkassann á sér“.

Hélt að maðurinn myndi drepa hann

Hann hafi lýst því fyrir lögreglumönnum að hann hefði verið í heimsókn hjá kærða og ætlað að gista hjá honum um nóttina. Þeir hefðu drukkið áfengi og verið orðnir töluvert ölvaðir þegar „kærði skyndilega og af tilefnislausu hefði ráðist á hann þar sem hann hefði setið á rúmi í íbúðinni“.

Árásarmaðurinn hefði kýlt hann í andlit og líkama og bitið hann í andlit og eyra. Þolandi kvaðst hafa haldið að maðurinn myndi drepa hann og því hefði hann kýlt frá sér en við það hefði sá síðarnefndi rotast. Þolandi hafi þá komið sér út úr húsinu.

Lungað fallið saman

Þá kemur einnig fram í úrskurðinum að maðurinn sem varð fyrir árásinni hafi hlotið talsverða áverka; hann hafi virst rifbeinsbrotin, kjálkabrotinn og viðbeinsbrotinn. Hann var fluttur á heilsugæslu og því næst á sjúkrahúsið á Akranesi. Þaðan var hann fluttur á Landspítala í Fossvogi en í ljós kom að lunga hans var samfallið vegna áverkanna. 

Ástand mannsins hafi svo versnað tveimur dögum eftir árásina þannig að hann þurfti innlögn á gjörgæslu. Ástand hans var metið alvarlegt og lífshættulegt. Maðurinn liggur enn á sjúkrahúsi samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Allt úti í blóði

Mikið blóð, blóðslettur og blóðkám var víða um gólf hússins og á veggjum, að sögn lögreglu sem kannaði vettvang eftir árásina. Þá hafi verið mikið af blóðblettum á rúmfötum í rúmi sem þolandi kvaðst hafa verið í þegar ráðist var á hann.

Meintur árásarmaður lá á gólfi hússins þegar lögreglumenn komu þangað inn. Hann kvartaði undan höfuðverk og var með glóðarauga á báðum augum og var fluttur á sjúkrahús. Hann var svo handtekinn eftir útskrift af sjúkrahúsinu 21. október. Þá hafi hann sagt í yfirheyrslu lögreglu að hann hefði neytt áfengis og sterkra verkjalyfja umrætt kvöld og kvaðst hvorki muna eftir því að hafa kýlt né bitið hinn manninn.

Héraðsdómur úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald til 2. nóvember, auk þess sem fallist var á að hann sætti einangrun í gæsluvarðhaldinu. Landsréttur stytti varðhaldið hins vegar til 29. október með úrskurði sínum á föstudag.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×