Hættusvæðið stækkað

Kort af hættusvæðinu.
Kort af hættusvæðinu. Ljósmynd/Lögreglan

Hættusvæðið umhverfis gosstöðvarnar hefur verið uppfært vegna breytinga á gosvirkni í Geldingadölum.

Öflugir kvikustrókar ná nú 200 til 300 metra hæð yfir yfirborð og mynda gjósku sem berst frá gosupptökum en 5 til 15 sentímetra bombur úr kvikustrókum hafa fundist nokkur hundruð metra frá virkum gíg, segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Líkanreikningar úr módelinu Eject og upplýsingar úr mörkinni hafa verið notuð til að draga útlínur nýs hættusvæðis þar sem bomburnar úr kvikustrókunum geta verið lífshættulegar.

Hættusvæði af völdum bomba er metið 400 metra radíus umhverfis gíg í logni og radíus eykst í 650 metra ef vindur er 15 metrar á sekúndu. Gjóskufall fylgir vindátt og minni korn geta fallið utan skilgreinds hættusvæðis 3, segir í tilkynningunni.

Fjölmenni skoðar haunflæði í Geldingadölum.
Fjölmenni skoðar haunflæði í Geldingadölum. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert