Skrifaði undir í Vestmannaeyjum

Tómas Bent Magnússon í leik gegn KA síðasta sumar.
Tómas Bent Magnússon í leik gegn KA síðasta sumar. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Knattspyrnumaðurinn Tómas Bent Magnússon hefur framlengt samning sinn við ÍBV til næstu þriggja ára.

Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni í dag en Tómas Bent, sem er tvítugur, er uppalinn hjá félaginu.

Alls á hann að baki 12 leiki í efstu deild en hann lék tíu leiki með ÍBV í Bestu deildinni síðasta sumar.

„Knattspyrnuráð er mjög ánægt með að hafa tryggt sér krafta Tómasar þrjú næstu árin,“ segir meðal annars í tilkynningu Eyjamanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert