Kvíði og hræðsla eðlileg viðbrögð við jarðhræringum Vésteinn Örn Pétursson skrifar 1. mars 2021 20:20 Mikil skjálftavirkni hefur verið á Reykjanesskaga að undanförnu og hafa skjálftar fundist víða á suðvesturhorninu. Vísir/Vilhelm Sálfræðingur segir kvíða og hræðslu vegna jarðhræringa vera ósköp eðlileg viðbrögð við jarðhræringum eins og þeim sem hafa verið á Reykjanesskaga upp á síðkastið, og fundist víðar um land.
Sálfræðingur segir kvíða og hræðslu vegna jarðhræringa vera ósköp eðlileg viðbrögð við jarðhræringum eins og þeim sem hafa verið á Reykjanesskaga upp á síðkastið, og fundist víðar um land. „Við erum óvön því að jörðin sé að skekjast svona, þannig að það er eðlilegt að við finnum fyrir þessari óttatilfinningu,“ segir Anna Sigríður Jökulsdóttir, sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni. Hún var til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Anna Sigríður segir að óttatilfinning vegna skjálftanna geti stafað af því að kvíðaviðbragð sé að kvikna hjá fólki, enda sé það óvant jarðhræringum sem þessum. „Það er í raun vírað í okkur að það kviknar þegar eitthvað óvanalegt er að gerast, eða það er líklegt að eitthvað sem hefur áhrif á velferð okkar gæti verið að gerast. Hins vegar þá er kvíðaviðbragðið sjálft ekkert hættulegt, það er bara óþægilegt,“ segir Anna Sigríður. Anna Sigríður segir þá það að bregðast við eins og meiri hætta sé á ferðum en raunverulega er geti valdið aukinni óþæginda- eða kvíðatilfinningu. „Því þá fer óttaviðbragðið okkar kannski að virkjast í tíma og ótíma því heilinn heldur þá í raun og veru að það sé svona mikil hætta á ferðum,“ segir Anna Sigríður. Mikilvægt að taka á kvíða barnanna Anna Sigríður telur þá mikilvægt fyrir kvíða barna vegna jarðhræringa að fullorðið fólk bregðist við í samræmi við hvað er að gerast. „Þegar það eru skjálftar sem hrista hér aðeins og það er ekki ástæða til að bregðast neitt meira við heldur en að bíða það af sér, þá er mikilvægt að segja þeim það.“ Hún segist þá telja gott að spyrja börnin hvað þau séu raunverulega hrædd um að gerist, þar sem ótti barna snúi stundum að einhverju sem getur ekki eða mun ekki gerast. Gott sé að gera börnum grein fyrir því að þau séu jafn örugg í skólanum og heima. „Það er brugðist við eins og þarf að gera, hvort sem þau eru þar eða heima hjá sér. Þau halda kannski að jörðin sé að gera eitthvað sem hún er ekki að gera. Það er mikilvægt að vita hvað það er sem þau eru hrædd um,“ segir Anna Sigríður.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Geðheilbrigði Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Innlent Fleiri fréttir Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Sjá meira