Báðir grunuðu í hópnauðgunarmáli sæta farbanni Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 22. september 2021 15:54 Landsréttur hefur úrskurðað í málum beggja sem grunaðir eru um að hafa nauðgað konu. Vísir/Vilhelm. Landsréttur hefur einnig staðfest farbann yfir hinum manninum sem grunaður er um að hafa nauðgað konu í félagi við annan mann um miðjan maí síðastliðinn. Munu þeir báðir sæta farbanni til 11. nóvember.
Vísir sagði frá úrskurði Landsréttar í máli annars mannsins á mánudaginn en sama dag úrskurði Landsréttur í máli hins. Úrskurðurinn var hins vegar ekki birtur fyrr á vef Landsréttar fyrr en í dag. Þar segir að maðurinn sé undir rökstuddum grun um að hafa gerst sekur um háttsemi sem sextán ára hámarksfangelsisrefsing liggur við. Þá sé skilyrðum farbanns uppfyllt en þau eru meðal annars að hætta sé á að sakborningur komi sér úr landi í því skyni að forðast fullnustu refsingar. Í úrskurðum Landsréttar, í málum mannanna beggja, segir að þeir hafi verið búsettir hér á landi undanfarin ár, en séu af erlendu bergi brotnir. Sakaður um að hafa sagt öðrum manni að brjóta á konunni Líkt og áður segir er maðurinn grunaður um að hafa nauðgað konu. Samkvæmt staðfestum úrskurði héraðsdóms voru atvik þau að kona tilkynnti nauðgun tveggja manna til lögreglu. Konan hafi hvorki vitað hverjir gerendur væru né hvar brotið hefði átt sér stað nákvæmlega. Hún hafi þó sagt lögreglu að hún hefði umrætt kvöld verið á veitingastað og farið af honum í fylgd manns sem hafi boðið henni í samkvæmi. Í stað samkvæmis hafi maðurinn farið með hana í íbúð þar sem hann hefði beitt hana líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Þá segir að maðurinn hafi kallað á annan mann að ofbeldinu loknu og sagt honum að beita konuna samskonar ofbeldi. Sá sem um ræðir hér er maðurinn sem lögregla telur að hafi fyrst brotið á konunni, áður en hann kallaði á hinn manninn. Rannsóknin langt komin Saksóknari í málinu segir að rannsókn lögreglu sé vel á veg komin og að mennirnir tveir séu sterklega grunaðir um verknaðinn. Daginn eftir tilkynningu konunnar hafi lögregla farið á umræddan veitingastað og fengið staðfestingu þess efnis að mennirnir hafi verið á staðnum umrætt kvöld. Það var staðfest með upptökum úr eftirlitsmyndavél og vitnisburði starfsmanna staðarins. Þá hafi lögregla fengið upplýsingar um heimili mannsins sem hér um ræður og framkvæmt húsleit þar. Þar hafi fundist hlutir sem tengjast meintu broti, til dæmis skór, fatnaður, munir sem tilheyra konunni, rúmfatnaður, blóðugur pappír og fartölva. Því sé sterkur grunur um að íbúð hans sé brotavettvangur. Þar sem einungis sé beðið eftir niðurstöðum og gögnum úr DNA rannsókn á lífsýnum, sé ærin ástæða til að tryggja veru mannanna tveggja hér á landi. Landsréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms í málinu og þarf maðurinn að sæta farbanni til 11. nóvember næstkomandi.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svandís boðar til blaðamannafundar Innlent „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Innlent Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Innlent Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Erlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent Fleiri fréttir Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Pallborð í dag og niðurstöður nýrrar könnunar Svandís boðar til blaðamannafundar Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Sjá meira