Lyktaði eins og blóð, saur og sviti

Jude Law lifði sig inn í hlutverk sitt sem Hinrik …
Jude Law lifði sig inn í hlutverk sitt sem Hinrik VIII. AFP/Patricia de Melo Moreira

Leikarinn Jude Law lagði mikið á sig fyrir hlutverk hins illa lyktandi Hinriks VIII. í kvikmyndinni Firebrand. Lét hann útbúa ilmvatn sem lyktaði eins og blóð, saur og sviti til að lifa sig inn í hlutverkið.

Law sagðist hafa lesið ýmsar áhugaverðar lýsingar á því hvernig fólk gat fundið lyktina af Hinriki á milli herbergja og vildi hann lykta jafn illa og hann meðan á tökum stóð. Fékk hann ilmvatnsgerðarkonu til að blanda ilmvatnið saman sem hann í fyrstu notaði í hófi. Fljótlega var hann þó farinn að spreyja því í ansi miklu magni á sig.

Ekki voru þó allir á tökustað ánægðir með uppátækið. Leikstjóri myndarinnar segist hugsa með hryllingi til lyktarinnar af Law og að hún hafi tekið yfir allt upptökuverið.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg