Bjarki heldur áfram með Þórsara

Bjarki Ármann Oddsson þjálfar Þórsara áfram.
Bjarki Ármann Oddsson þjálfar Þórsara áfram. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bjarki Ármann Oddsson hefur framlengt samning sinn við Þór á Akureyri um þjálfun karlaliðs félagsins í körfuknattleik.

Bjarki tók við þjálfun Þórsara í haust, eftir fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar, en Akureyrarliðið hefur tryggt sér áframhaldandi sæti í deildinni og gæti í kvöld komist í úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn.

Þetta kemur fram á heimasíðu Þórs og þar er jafnframt sagt að Jón Ingi Baldvinsson verði Bjarka áfram til aðstoðar. Samningur þeirra beggja sé til eins árs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert