„Ríkið á að auka tækifæri fólks í þessari stöðu en ekki öfugt“ Ólafur Björn Sverrisson skrifar 20. maí 2022 14:27 Eitt af fyrstu verkum Hildar Sverrisdóttur á Alþingi var að smíða frumvarp til að auka frelsi í lagaramma tæknifrjóvgana. Samsett Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði nýverið fram frumvarp til breytinga á löggjöf um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna. Frumvarpið felur í sér einföldun regluverks í kringum tæknifrjóvganir ásamt auknu frelsi og trausti til handa tilvonandi foreldrum sem þurfa að nýta sér tæknifrjóvgun.
Frumvarpið felur aðallega í sér tvær breytingar á framkvæmd tæknifrjóvgunar. Annars vegar er lagt til að gjöf fósturvísa verði heimil. „Í dag má gefa egg og sæði en ekki tilbúinn fósturvísi, sem gagnvart þeim sem það þurfa er algjört gull í því samhengi. Hitt er að frumvarpinu er ætlað að útmá þá kröfu sem ríkið gerir í dag um sambúðarform, þ.e. að þurfa að vera giftur eða í staðfestri sambúð, til að mega fara í tæknifrjóvgun.“ Þetta sagði Hildur í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Ríkið á að auka tækifæri fólks en ekki öfugt Hildur tekur einnig sem dæmi par sem búið er að reyna í mörg ár að eignast barn og á fósturvísa en ákveður að vilja ekki vera par lengur. Vilji þetta par samt sem áður nota fósturvísana og eignast barn, þá er lagt blátt bann við því. „Ég tala nú ekki um samkynja par, tvær konur sem nota sitt hvort eggið og eiga þar með fósturvísa hvort um sig. Segjum ef þær myndu skilja og gera samkomulag sín á milli um að vilja hvor um sig taka sitt egg, sinn fósturvísi, þá má það heldur ekki í dag. Ríkið á að auka tækifæri fólks í þessari stöðu en ekki öfugt.“ Ekki megi þó selja fósturvísana í ágóðaskyni og er það tekið fram í frumvarpinu. Þá gilda sömu reglur um gjöf fósturvísa og gilda um gjafaegg í núgildandi löggjöf. Þannig getur barn, sem verður til vegna fósturvísagjafar, er það nær 18 ára aldri óskað eftir aðgangi að upplýsingum um nafn gjafans. Þetta á þó einungis við ef gjafi hefur ekki óskað eftir nafnleynd. Hægt er að hlusta á viðtalið við Hildi í Bítinu í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan: Fordómar liggja að baki núverandi löggjöf Hildur segist hafa lagst í talsverða rannsóknarvinnu við gerð frumvarpsins en engin rök fundið fyrir núverandi tilhögun lagaumgjörðar fósturvísa. „Auðvitað er þetta framandi fyrir marga og það er ekki ýkja langt síðan við vorum skeptísk gagnvart samkynhneigðum og þeirra barneignum, en nú er öldin önnur." Þannig telur Hildur slíkan ótta hafa hægt á ferlinu almennt og flækt það. „Sé passað upp á öll réttindi gagnvart barninu þá sé ég engan eðlismun á þessum barneignum og öðrum. Í raun er þetta einföld lagabreyting sem mun skipta marga miklu og vera algjör lykilbreyta gagnvart þeim sem þetta varðar.“ Þekkir þessi mál af eigin raun Hildur hefur sjálf verið í þessari stöðu og gert sér grein fyrir ýmsum vanköntum í tæknifrjóvgunarferlinu. „Við það að rýna í þennan heim hnaut ég um ýmis atriði sem betur mætti fara. Í fyrsta lagi þessi atriði sem ég er að laga í þessu frumvarpi, einnig reglur um ættleiðingar sem mætti færa betur inn í samtímann. Varðandi kostnaðarþátttöku ríkisins er hið opinbera alltaf að meta hvenær í ferlinu best sé að koma til móts við fólk og sú vinna er alltaf í gangi.“ Samstaða flokkanna falleg skilaboð Að baki frumvarpsins standa þingmenn úr öllum flokkum þingsins sem Hildur segir falleg skilaboð. „Ég lagði svolítið á mig til að hafa þetta þannig. Þetta þýðir þó ekki að allir þingmenn séu skuldbundnir til að samþykkja frumvarpið en ég hef enn ekki fengið að heyra neikvæðar raddir hingað til.“
Alþingi Réttindi barna Börn og uppeldi Sjálfstæðisflokkurinn Heilbrigðismál Frjósemi Bítið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Sjá meira