FÍB segja mögulegt að lækka iðgjöld bifreiðatrygginga um 7 milljarða Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. september 2021 09:39 „Ofteknu iðgjöldin leggja trygggingafélögin í bótasjóði sem þau ávaxta í eigin þágu.“ Vísir/Vilhelm Forsvarsmenn Félags íslenskra bifreiðaeigenda telja tryggingafélögin geta lækkað iðgjöld bifreiðatrygginga um 7 milljarða króna á ári og samt skilað ásættanlegri afkomu. „
Eftir sem áður væru íslenskir neytendur að borga hæstu iðgjöld bílatrygginga á Norðurlöndunum,“ segir í tilkynningu frá FÍB. Útreikningarnir miðast við 20 prósent lækkun iðgjaldanna, sem forsvarsmenn FÍB segja hóflega lækkun í ljósi þess að iðgjöldin séu 50 til 100 prósent hærri hér en á hinum Norðurlöndunum. Eigendur ökutækja hafi greitt 37 milljarða króna í iðgjöld bifreiðatrygginga árið 2020. Fólksbílar séu 87 prósent skráðra ökutækja og reikningurinn lendi því að megninu til á heimilunum. „FÍB hefur um árabil gagnrýnt fákeppni milli tryggingafélaganna og mikla sjóðasöfnun með ofteknum iðgjöldum. Þá hefur FÍB nýlega bent á að þrátt fyrir mikla fækkun umferðarslysa undanfarin ár, þá hafa iðgjöld bílatrygginga hækkað jafnt og þétt allan tímann. Það sem af er þessu ári hafa þau hækkað um 6% og samtals um 44% á undanförnum fimm árum,“ segir í tilkynningunni. „Ofteknu iðgjöldin leggja trygggingafélögin í bótasjóði sem þau ávaxta í eigin þágu. Um síðustu áramót námu bótasjóðir vegna allra bílatrygginga 55 milljörðum króna. Ekki er lengur þörf fyrir þessa miklu sjóðasöfnun til að mæta tjónsáhættu. Langt er síðan Evrópusambandið breytti fyrirkomulagi reikningsskila tryggingafélaga með svokallaðri Solvency 2 reglugerð. Með þeirri breytingum er eigin fé tryggingafélaganna ætlað að mæta áhættu vegna tryggingastarfseminnar. Fyrir liggur að eiginfjárstaða þeirra er firnasterk og þau hafa því borð fyrir báru til að lækka iðgjöldin með því að hætta þessari miklu sjóðasöfnun.“
Bílar Tryggingar Neytendur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Viðskipti innlent Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Viðskipti innlent Fjármálastjóri Play segir upp Viðskipti innlent Endurgjöf: Það sem þú átt ekki að gera Atvinnulíf Innsigla B5 að kröfu Skattsins Viðskipti innlent Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Viðskipti erlent Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Viðskipti erlent Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Viðskipti erlent Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkingar Allir með fjölnota innkaupapoka fá frítt í strætó á morgun Stöð 2+ lækkar verð Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á Villta vestrið í gjaldtöku bílastæða FÍB vill að Neytendastofa grípi til aðgerða vegna ófremdarástands í bílastæðamálum Mamman ítrekað læst úti en fær engar skaðabætur Flúðu dónalegan fararstjóra og fá ekki krónu Laumuðu fötunum með barnabílstólunum og fá lægri bætur Hótelið alls ekki sex hundruð metra frá ströndinni Athafnaleysi Katrínar geti skaðað hagsmuni landsmanna Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Hvað er opið um páskana? Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Bónus, Extra og Heimkaup oftast með lægsta verðið á páskaeggjum Fyrirtæki sem skili milljarða hagnaði leiki nú lausum hala Fólk sæki bætur sjálft til að sleppa við „blóðuga“ þóknun Gapandi yfir gjörbreyttu frumvarpi og varar við því Breytingarnar séu stórhættulegar og á kostnað launafólks Dældu skemmdri díselolíu á bíla sína Vara eindregið við frumvarpi sem leiði til verðbólgu Undrast að það séu hreinlega ekki óeirðir á Íslandi Mál tengd Base Parking á borði Neytendasamtakanna í hverjum mánuði Landsbankinn lækkar vexti Heyrðu fyrst frá blaðamanni um dómsmálið og að þau hefðu tapað því Gerði ekki gott mót og dæmdur til að veita afslátt Hefja uppbyggingu náttúrubaða við upphaf Gullna hringsins Sjá meira