Jevgení Prígosjín, yfirmaður rússnesku málaliðasveitarinnar Wagner, segir að menn hans hafi náð yfirráðum á ríflega helmingi Bakhmút-borgar í austurhluta Úkraínu.
„Í augnablikinu ráða Wagner-liðar um 70% af borginni Bakhmút en þeir halda áfram aðgerðum til þess að ljúka því að frelsa borgina,“ sagði Prígosjín í opnu bréfi til varnarmálaráðherra Rússlands, Sergei Shoigu.
Bréfið var birt á samfélagsmiðlum en Prígosjín reyndi í því að sannfæra Shoigu um að veita sér nauðsynlegan búnað til þess að verjast gagnárás Úkraínumanna sem hann sagði að von væri á í lok mars eða í apríl.