Víðir með mark sumarsins gegn Víkingum (myndskeið)

Víðismenn úr Garði eru ríkjandi meistarar í bikarkeppni neðri deildar …
Víðismenn úr Garði eru ríkjandi meistarar í bikarkeppni neðri deildar liða. mbl.is/Kristinn Magnússon

 David Toro, leikmaður Víðis í Garði, kom gestunum óvænt yfir með stórfenglegu marki þegar Víðir mætti Víkingi í Fossvoginum í dag í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu.

Víkingar eru tvöfaldir meistarar og búist var við auðveldum sigri heimamanna gegn Víði sem leikur í 3. deild.

Víðismenn voru þó fyrstir til að skora þegar Toro skaut beint úr aukaspyrnu af 70 metra færi. Pálmi Rafn Arinbjörnsson, markvörður Víkings, stóð fyrir framan vítateig sinn og Toro lét ekki bjóða sér það tvisvar. Myndband af markinu er hér fyrir neðan.

Víkingur sigraði að lokum 4:1 en gestirnir úr Garði geta stært sig af flottasta marki leiksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert