Magnús D. Norðdahl vill leiða lista Pírata í Norðvestur Atli Ísleifsson skrifar 22. febrúar 2021 14:01 Magnús Davíð Norðdahl lögmaður. Aðsend Magnús Davíð Norðdahl lögmaður hefur tilkynnt um framboð hjá Pírötum í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar sem fram fara í september. Hann sækist eftir því að leiða lista flokksins.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Magnúsi. Hann hefur að undanförnu vakið athygli fyrir störf sín sem lögmaður hælisleitenda, þar á meðal hinnar egypsku Khedr-fjölskyldu sem var mikið í fréttum hér á landi síðasta haust og fékk að lokum dvalarleyfi hér á landi eftir úrskurð kærunefndar útlendingamála. Málefni hælisleitenda í eðli sínu pólitísk Magnús segir málefni hælisleitenda í eðli sínu vera pólitísk og að baráttu hans á þeim vettvangi hafi skilað árangri fyrir fjölda einstaklinga og fjölskyldna sem áður horfðu fram á brottvísun úr landi en hafi fengið tækifæri til að setjast hér að og taka þátt og leggja sitt af mörkum til íslensks samfélags. „Sem stjórnmálamaður langar mig almennt að útvíkka baráttu mína þannig að unnið sé að heildstæðum kerfisbreytingum til hagsbóta fyrir þá hópa samfélagsins sem hafa borið skarðan hlut frá borði, hvort sem það er fólk sem hefur misst vinnuna, láglaunafólk, erlent vinnuafl, hælisleitendur eða vanrækt börn svo dæmi séu nefnd. Baráttan er enn sú sama en er háð á öðrum og stærri vettvangi stjórnmálanna þar sem tækifæri gefst til að efla hag fleiri einstaklinga á heildstæðum grunni,“ segir Magnús. Hann segir þá stjórnmálaflokka, sem hafi farið með meirihluta þingstyrks á Alþingi á síðustu árum, hafi fengið sitt tækifæri og nú sé komið að öðrum að leiða nauðsynlegar og löngu tímabærar umbætur. „Píratar eru framsæknir, byggja á gagnrýninni hugsun og vilja að stefnan hverju sinni taki mið af fyrirliggjandi gögnum og þekkingu. Þannig næst árangur,“ segir Magnús meðal annars í yfirlýsingunni. Í grunninn höfuðborgarbúi en margvísleg tengsl Magnús segir að þótt hann sé í grunninn höfuðborgarbúi séu tengsl hans við Norðvesturkjördæmi margvísleg. „Ég ber hag kjördæmisins fyrir brjósti í raun og sann og átti sæti á lista Pírata í kjördæminu fyrir síðustu alþingiskosningar. Ég starfaði sem leiðsögumaður í uppsveitum Borgarfjarðar á árunum 2007-2012. Það svæði þykir mér eitt það fegursta á landinu og legg ég leið mína þangað oft á hverju ári. Þá var föðuramma mín Guðrún Jóhanna Norðdahl fædd og uppalin á Skálmarnesmúla við norðanverðan Breiðafjörð. Þangað kom ég iðulega sem barn á ferðalagi með foreldrum mínum um landið. Ég er mikið náttúrubarn og hef gengið töluvert um kjördæmið, meðal annars á Hornströndum, Hítardal, Holtavörðuheiði, Þorskafirði, Snæfellsnesi, vestanverðum Tröllaskaga og víðar og heillast af fegurð og fjölbreytileika kjördæmisins. Þá er ég eigandi að hlut í tveimur jörðum í kjördæminu, annarri í Skagafirði og hinni á Barðaströnd. Að lokum skal nefnt að sem lögmaður hef ég tekið að mér hagsmunagæslu fyrir einstaklinga búsetta í kjördæminu og rekið mál fyrir Héraðsdómi Vestfjarða á Ísafirði, Héraðsdómi Vesturlands í Borgarnesi og Héraðsdómi Norðurlands vestra á Sauðárkróki,“ segir Magnús. Hann er kvæntur Auði Kömmu Einarsdóttur atvinnuráðgjafa og eiga þau saman tvö börn. Prófkjör Pírata stendur frá 3. til 13. mars.
Píratar Alþingiskosningar 2021 Norðvesturkjördæmi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Fleiri fréttir Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Sjá meira