Hjálpræðisherinn stefnir á opnun á nýjum stað eftir helgi Heimir Már Pétursson skrifar 2. desember 2020 20:00 Nýi herkastalinn er glæsileg bygging sem gefur Hjálpræðishernum kost á að auka þjónustu sína við þá sem minnst mega sín í samfélaginu. Stöð 2/Sigurjón Flokksleiðtogi Hjálpræðishersins í Reykjavík vonar að hægt verði að hefja starfsemi í nýjum herkastala strax eftir helgi. Mikil þörf sé á þjónustu við þá sem minnst megi sín en reiknað sé með að allt að átta hundruð manns sæki þjónustu til hersins í viku hverri.
Það eru rúm fjögur ár frá því Hjálpræðisherinn kvaddi höfuðstöðvar sínar í miðborginni í rúm hundrað ár og hefur síðan rekið starfsemi sína í mun minna húsnæði í Breiðholti. En nú er allt að verða tilbúið í nýju og glæsilegu húsi hersinis við Suðurlandsbraut sem Hjördís Kristinsdóttir liðsforingi Hjálpræðishersins í Reykjavík vonast til að hægt verði að opna á mánudag. Hjördís Kristinsdóttir liðsforingi Hjálpræðishersins segir mikla þörf vera fyrir þjónustu hersins við þá sem minnst mega sín.Stöð 2/Sigurjón „Það er heilmikil þörf. Við höfum verið að sinna þessum jaðarsettu hópum. Fólki sem er bæði félagslega einangrað og býr við fátækt,“ segir Hjördís. Við opnun eldhússins verði hægt að bjóða fólki hvern virkan dag upp á heitan mat. „En svo bætist náttúrlega við í þessu nýja húsi aðstaða fyrir fólk til að komast í sturtu og fólk getur þvegið af sér fötin. Þannig að þetta verður miklu viðameira en það sem við höfum getað verið að bjóða upp á að undanförnu,“ segir Hjördís. Vegna covid faraldursins verða fulltrúar Hjálpræðishersins ekki á ferðinni í jólasöfnun þessa árs. Þess í stað verður söfnunin rafræn. En sala Herópsins fyrir hver jól er aðaltekjuöflun hersins.Stöð 2/Sigurjón Vegna covid verða fulltrúar hersins ekki á ferli með árlega söfnunarbauka fyrir jólin en skiltum með QR-kóða verður komið fyrir á fjölförnum stöðum þar sem fólk getur tekið eintak af Herópinu og greitt fyrir valda upphæð með símanum. Um eitt til tvö hundruð manns með fjölbreyttan bakgrunn sækir aðstoð Hjálpræðishersins á hverjum degi. „Við erum með fólk sem er heimilislaust, fólk sem er í neyslu, við erum með aldraða og öryrkja. Við erum með fólk sem eru nýjir Íslendingar nýkomnir með kennitölu. Bara alla flóru mannkynsins myndi ég segja,“ segir Hjördís. Hún vonar að covid muni ekki trufla hinn árlega jólakvöldverð og hann geti farið fram með hefðbundnum hætti eða þá í skiptum sóttvarnarhólfum. „Þriðji kosturinn sem væri sá alversti væri sá að við þyrftum að láta fólk koma og sækja matarbakka og pakka í poka.“ En það er alveg klárt að það verður eitthvað gert? „Já við munum mæta okkar hópi. Það er alveg ljóst,“ segir Hjördís Kristinsdóttir.
Reykjavík Hjálparstarf Félagasamtök Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Harvey Weinstein lagður inn á spítala Erlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Sjá meira