Liðsfélagi Conor McGregor keppir á Íslandi

Sara Dís Davíðsdóttir og Kristján Helgi Hafliðason taka þátt um …
Sara Dís Davíðsdóttir og Kristján Helgi Hafliðason taka þátt um helgina. Ljósmynd/Ásgeir Marteinsson

Úrslitakvöld Unbroken-deildarinnar í uppgjafarglímu fer fram næstkomandi laugardag, 3. júní, í Tjarnarbíói.

Eftir þrjá keppnisdaga, einn í janúar, febrúar og mars, munu úrslitin ráðast í fyrstu deildakeppninni í uppgafarglímu á Íslandi frá upphafi, þar sem efstu tveir keppendurnir í hverjum flokki mætast í hreinni úrslitaglímu.

Deildinni var skipt í byrjendadeild, þ.e. þeim sem búa yfir minna en tveggja ára reynslu af glímu, og úrvalsdeild. Úrslitin í byrjendadeildinni hefjast klukkan 16 og í úrvalsdeildinni klukkan 19.30.

Í byrjendadeildinni fara sjö glímur fram og sex í úrvalsdeildinni. Auk þess verða þrjár svokallaðar ofurglímur undir lokin þar sem erlendir keppendur mæta bestu glímumönnum Íslands.

„Erlendu keppendurnir eru allt frábærir glímumenn sem mæta sérstaklega hingað til lands til að keppa á viðburðinum. Í aðalglímu kvöldsins verður Valentin Fels gegn Marcin Held. Valentin er franskur glímumaður sem hefur verið búsettur hér á landi í hálfan áratug. Hann er einn af allra bestu glímumönnum landsins og þjálfar bæði hjá Mjölni og Brimi á Akranesi.

Andstæðingur hans, Marcin Held, er frábær glímumaður sem hefur getið sér gott orð í MMA heiminum. Marcin hefur barist í UFC, Bellator og berst nú í PFL. Marcin er þekktur fyrir frábæra takta á gólfinu og var aðeins 21 árs gamall þegar hann fékk svarta beltið í brasilísku jiu-jitsu,“ segir í tilkynningu frá Mjölni.

Þar segir einnig:

„Ómar Yamak er svart belti í brasilísku jiu-jitsu og hefur verið einn besti glímumaður landsins undanfarin ár. Hann mætir Lee Hammond sem hefur lengi verið meðal efnilegustu bardagakappa Írlands. Lee er 5-0 sem atvinnumaður í MMA og verður í næstu seríu The Ultimate Fighter sem fer í sýningar í næstu viku.

Lee verður þar í liði Conor McGregor enda æfir Lee hjá SBG og hefur lengi æft með Conor á Írlandi. Lee er frábær glímumaður en hann hefur bæði unnið British Nogi Championship og IBJJF Irish Championship. Það er frábært að fá hann hingað til lands og má búast við afar skemmtilegri glímu við Ómar.

Kristján Helgi Hafliðason hefur farið hamförum á glímumótum hérlendis undanfarin tvö ár. Hann hefur gjörsigrað mótherja sína og unnið öll stóru mótin hérlendis síðustu ár. Hann mætir Mohammed Avtarhanov frá Írlandi.

Mohammed er aðeins tvítugur en hefur glímt í fjölmörg ár. Hann er fimmfaldur Írlandsmeistari, á 3 titla á Grapple Kings, Evrópumeistari unglinga, margfaldur meistari á Dublin Open og klárar 88% viðureigna sína á uppgjafartaki.“

Uppröðunin á glímukvöldinu á laugardag:

Valentin Fels gegn Marcin Held
Ómar Yamak gegn Lee Hammond
Kristján Helgi Hafliðason gegn Mohammed Avtarhanov
-88 kg karla: Stefán Fannar Hallgrímsson (Mjölni) gegn Helga Frey Ólafssyni (Mjölni)
-70 kg kvenna: Ólöf Embla Kristinsdóttir (VBC) gegn Söru Dís Davíðsdóttur (Mjölni)
-77 kg karla: Vilhjálmur Arnarsson (Mjölni) gegn Breka Harðarsyni (Atlantic)
-60 kg kvenna: Inga Birna Ársælsdóttir (Mjölni) gegn Auði Olgu Skúladóttur (Mjöln)
+70 kg kvenna: Anna Soffía Víkingsdóttir (VBC) gegn Hildi Maríu Sævarsdóttur (Reykjavík MMA)
-99 kg karla: Halldór Logi Valsson (Mjölni) gegn Bjarka Eyþórssyni (Mjölni)

Byrjendadeild:
-70 kg kvenna: Vera Óðinsdóttir (Reykjavík MMA) vs. Kolfinnu Þöll Þórðardóttur (Mjölni)
-88 kg karla: Stefán Atli Ólason (Brimi BJJ) gegn Hilmi Dan Gíslasyni (World Class MMA)
-60 kg kvenna: Harpa Hauksdóttir (Mjölni) gegn Þórhönnu Ingu Ómarsdóttur (VBC)
-77 kg karla: Aron Óli Valdimarsson (Reykjavík MMA) gegn Guðmari Kristinssyni (Reykjavík MMA)
-66 kg karla: Haukur Birgir Jónsson (Mjölni) gegn Birni Hilmarssyni (Mjölni)
-99 kg karla: Bragi Þór Pálsson (Mjölni) gegn Kormáki Snorrasyni (Mjölni)
+99 kg karla: Birgir Steinn Ellingsen (Brimi BJJ) gegn Eiríki Guðna Þórarinssyni (Mjölni)

Miðasala fer fram á Tix.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert