Höfnuðu á ljósastaur og sökuðu hvor annan um að hafa ekið bílnum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. júlí 2021 07:17 Þeir sem vistaðir voru í fangaklefa í nótt fara væntanlega í skýrslutöku þegar rennur af þeim í dag. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti tveimur tilkynningum um innbrot í póstnúmeri 105 í Reykjavík með fjórtán mínútna millibili í gærkvöldi. Þá voru ökutæki stöðvuð víða á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt þar sem grunur er um að ökumaður hafi verið undir áhrifum fíkniefna eða áfengis.
Venju samkvæmt greinir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu frá verkefnum sem sinnt var í gærkvöldi og nótt í fréttaskeyti til fjölmiðla í morgunsárið. Af átján verkefnum sem lögreglan segir frá sneru tíu þeirra að grun um akstri undir áhrifum. Tilkynnt var um innbrot á heimili í hverfi 105 um hálf átta leytið í gærkvöldi og stundarfjórðungi síðar í bifreið í sama hverfi. Ekki kemur fram hvort sömu aðilar hafi tilkynnt innbrotið eða hvort grunur sé um að sami aðili hafi verið þar á ferð. Á tólfta tímanum var tilkynnt um slagsmál í miðbæ Reykjavíkur og á fimmta tímanum í nótt barst lögreglu tilkynning um innbrot á ónefndan leikskóla vestan Elliðaár. Einstaklingur var til vandræða í strætó í póstnúmeri 113 á níunda tímanum í gærkvöldi. Þá sinnti, samkvæmt fréttaskeyti lögreglu, lögreglan í Kópavogi og Breiðholti útkalli klukkan 20:28 í Mosfellsbæ þar sem bíl hafði verið ekið á ljósastaur. Tveir einstaklingar voru í bifreiðinni og sökuðu þeir hvor annan um að hafa ekið. Báðir einstaklingarnir eru grunaðir um að vera undir áhrifum fíkniefna. Báðir handteknir og vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Tilkynnt var um innbrot í geymslu í fjölbýlishúsi í Kópavogi á ellefta tímanum í gærkvöldi. Þá sinnti lögreglan á Vínlandsleið tilkynningu um hópslagsmál í Mosfellsbæ á öðrum tímanum í nótt.
Lögreglumál Næturlíf Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Fleiri fréttir Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið Sjá meira