800 milljóna styrkur til HÍ og annarra samstarfsskóla Sylvía Hall skrifar 10. júlí 2020 12:56 Háskoli Íslands tekur þátt í verkefninu ásamt átta öðrum háskólum í Evrópu. Vísir/Vilhelm
Evrópusambandið mun veita allt að fimm milljónum evra til Aurora-háskólanetsins á næstu þremur árum, sem samsvarar um 800 milljónum íslenskra króna. Háskoli Íslands tekur þátt í verkefninu ásamt átta öðrum háskólum í Evrópu. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir í samtali við fréttastofu að það liggi ekki fyrir hversu stór hluti af styrknum muni renna til háskólans. Það sé þó ljóst að Háskóli Íslands sé framarlega í samstarfinu og mun því fá stóran hluta. Markmið samstarfsins er að efla rannsóknir og kennslu í þágu þeirra samfélaga þar sem háskólarnir starfa en auk Háskóla íslands eru Copenhagen Business School í Danmörku, East Anglia háskólinn í Englandi, Federico II-háskólinn í Napolí á Ítalíu, Háskólinn í Duisburg-Essen í Þýskalandi, Háskólinn í Innsbruck í Austurríki, Palacky háskólinn í Olomouc í Tékklandi, Rovira i Virgili-háskólinn í Tarragona á Spáni og Vrije-háskólinn í Amsterdam í Hollandi. Verkefnið muni skila miklu til samfélagsins Verkefnið er unnið innan svokallaðrar European University-áætlunar sem er ætlað að efla samstarf evrópskra háskóla og styrkja þá í samkeppni við aðra háskóla í heiminum. Með samvinnunni er búist við grundvallarbreytingum á því hvernig háskólar í Evrópulöndum vinna saman og telur rektor að verkefnið verði gjöfult fyrir íslenskt samfélag. „Samþykkt umsóknarinnar staðfestir enn og aftur sterka stöðu Háskóla Íslands á alþjóðlegum vettvangi. Evrópsku háskólanetin gegna lykilhlutverki í tengslum við framtíðarþróun evrópskra háskóla, enda hefur verið mikil samkeppni um þessa styrki. Aurora-Alliance verkefnið mun ótvírætt skila miklu til íslensks samfélags. Það er mikil vinna framundan, en ég óska okkur öllum til hamingju,“ er haft eftir Jóni Atla í fréttatilkynningu. Jón Atli segir HÍ standa framarlega í samstarfinu.Vísir/Vilhelm Íslendingar þurfa að tryggja alþjóðlegt samstarf sökum smæðar Í tilkynningu frá Háskóla Íslands kemur fram að samstarf á borð við þetta bjóði upp á mikla möguleika, bæði í rannsóknum og kennslu. Það sé nauðsynlegt fyrir Íslendinga að tryggja slíkt samstarf, enda starfi háskólinn í alþjóðlegu umhverfi og hér á landi sé vísinda- og fræðasamfélagið lítið. „Háskóli Íslands er með fjölmarga samstarfssamninga bæði austan hafs og vestan sem segja má að stækki íslenska háskólakerfið þar sem nemendur geta tekið hluta af námi sínu í skiptinámi auk þess sem vísindamenn eiga í miklu rannsóknasamstarfi. Háskólarnir í Aurora netinu hyggjast auka umfang slíks samstarfs enn frekar og samhæfa starf sitt eins og kostur er til að ná enn betri árangri í kennslu og rannsóknum,“ segir Jón Atli. Hann segir háskólann vera í lykilstöðu í Aurora-netinu en áfram verði unnið af krafti með öðrum skólum og í öðrum netum. Framtíðin innan háskólakerfisins sé björt. „Þekking er lykill að framtíðinni og hlutverk Háskóla Íslands er að skapa og miðla þekkingu. Við höfum náð ótrúlegum árangri í Háskóla Íslands og þurfum að halda áfram á sömu braut í þágu íslensks samfélags. Það er lykilatriði að við séum samkeppnishæf á alþjóðavísu. Aurora-netið og þau verkefni sem við tökum þátt í á vettvangi þess hjálpa okkur á þeirri braut.“
Skóla - og menntamál Evrópusambandið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent Hvessir víðast hvar síðdegis Fréttir „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Fleiri fréttir Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira