Segir tónlist Ásgeirs Trausta hafa hjálpað sér í veikindum sonar síns Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 4. desember 2022 13:36 „Þetta fékk mig til að, ég veit ekki, þetta lét mig titra að innan og óma eins og bjöllu. Það var virkilega fallegt þegar ég komst að þessu,“ segir Rob Delaney. Getty Bandaríski leikarinn og grínistinn Rob Delaney opnaði sig nýlega í hlaðvarpsviðtali og ræddi meðal annars um það hvernig lög íslenska tónlistarmannsins Ásgeirs Trausta veittu honum styrk á erfiðum tímum.
Flestir kannast við Rob úr Deadpool 2 myndinni og þáttaröðinni Catastrophe en hann fer einnig með hlutverk í væntanlegri kvikmynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, Northen Comfort. Rob gekk í gegnum mikinn harmleik fyrir nokkrum árum þegar kornungur sonur hans lést úr heilaæxli aðeins tveggja og hálfs árs gamall. Hann gaf nýlega út bókina A Heart That Works þar sem hann rekur sögu sonar síns og sorgarferlið sem hann og fjölskyldan hafa gengið í gegnum. Rob mætti á dögunum í viðtal hjá Up First sem er vinsæll hlaðvarpsþáttur vestanhafs. Þar ræddi hann bókina og kom meðal annars inn á upplifun sína af því að horfa upp á son sinn í erfiðri krabbameinslyfjameðferð. Á meðan Henry litli dvaldi á sjúkrahúsinu gerði Rob sitt besta til að hafa ofan af fyrir syni sínum og fá hann til að gleyma veikindum sínum. Feðgarnir léku sér og lásu saman sögur og þess á milli lögðu þeir sig saman. „Hann lagði sig, og svo lagði ég mig og síðan hlustum við saman á fallega tónlist á íslensku,“ segir Rob í viðtalinu og á þar við tónlist Ásgeirs Trausta. Eitt af lögunum sem þeir feðgar hlustuðu á var Heimförin. Rob heldur áfram og segir að rúmlega tveimur árum seinna hafi hann unnið með íslenskum leikstjóra og sagt henni frá aðdáun sinni á íslenskum söngvara að nafni Ásgeir. „Og þá sagði hún mér áhugaverða staðreynd um hann, að pabbi hans væri ljóðskáld, og að pabbi hans hefði skrifað textana og hann hefði síðan samið tónlistana. Og ég var alveg bara: ha?“ Rob segir það hafa snert sig þegar hann komst að því að þessi íslenska tónlist var samin af feðgum, tónlistin sem hann hafði hlustað á með syni sínum á þessum dýrmætu og heilögu stundum. Eða eins og hann orðar það: „Á meðan við lágum saman og létum okkur dreyma á meðan hann var eins árs gamall og fastur í lyfjagjöf.“ Rob bætir því við að þessi uppgvötun hafi yljað honum um hjartarætur. „Þetta fékk mig til að, ég veit ekki, þetta lét mig titra að innan og óma eins og bjöllu. Það var virkilega fallegt þegar ég komst að þessu.“
Tónlist Hollywood Mest lesið „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Tónlist Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Lífið Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Tíska og hönnun Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Lífið Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Tróð upp í Norræna partýinu Lífið Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Lífið Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Lífið Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ Lífið Fleiri fréttir Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Tróð upp í Norræna partýinu Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Bakaríið í beinni Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Bakaríið í beinni Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Minningar um líf sem er að hverfa Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Sjá meira