Stuðningur getur numið rúmum 14 milljörðum

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á blaðamannafundinum í Hörpu.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á blaðamannafundinum í Hörpu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra kynntu í dag, ásamt fulltrúum Bandalags háskólamanna og Bandalags íslenskra listamanna, tíu stuðningsaðgerðir stjórnvalda fyrir listir og menningu á tímum COVID-19.

Aðgerðirnar eru fjölþættar og eiga að miða að því að bæta stöðu starfandi listamanna og menningartengdra fyrirtækja. Þær voru kynntar á blaðamannafundi í Hörpu.

Liður í þeim eru tekjufallsstyrkir sem einyrkjar og smærri rekstraraðilar munu geta sótt um en ráðgert er að heildarfjármunir sem varið verður til slíks stuðnings geti numið rúmum 14 milljörðum króna.

Helstu aðgerðir:

  • Sjálfstætt starfandi listamenn og menningartengd fyrirtæki geti sótt um rekstrarstyrki til að mæta tekjusamdrætti vegna COVID-19. Ráðgert er að fjármunir sem varið verður til almenns tekjufallsstuðnings nemi rúmum 14 milljörðum kr.
  • Tímabundin hækkun starfslauna og styrkja fyrir árið 2021 og tímamörk verkefnastyrkja til menningarmála verða framlengd.
  • Vitundarvakning um mikilvægi lista og menningar á Íslandi.
  • Stofnun Sviðslistamiðstöðvar og Tónlistarmiðstöðvar.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Íslensk menning er sterk, hún hefur staðið af sér marga storma. En menningarlífið hefur orðið fyrir miklu höggi vegna heimsfaraldursins og við teljum brýnt að bregðast við því með þessum aðgerðum sem eru framsýnar og metnaðarfullar, en jafnframt raunsæjar. Ég ber væntingar til þess að þær muni liðsinna sem flestum og trúi því að framtíðin sé björt í íslenskri menningu og listum. Við þökkum BHM, BÍL, ÚTÓN og fleirum fyrir frábæra samvinnu við undirbúning þeirra,“ er haft eftir Lilju Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

„Staða listamanna og fólks í skapandi greinum hefur verið flókin og erfið frá fyrsta degi samkomubanns. Hefðbundin úrræði sem grípa eiga fólk í erfiðri stöðu á vinnumarkaði hafa ekki nýst listamönnum sem skildi. Því eru þetta kærkomnar aðgerðir sem bæta tap og brúa tíma sem við öll vonum að verði sem stystur. Auk þess eru í þessum aðgerðum verkefni sem munu bæta framtíð greina og stöðu listamanna – bæði á vinnumarkaði og í þeirra mikilvæga hlutverki að lita heiminn bjartari litum,“ er haft eftir Erling Jóhannessyni, forseta Bandalags íslenskra listamanna.

Frá blaðamannafundinum í Hörpu.
Frá blaðamannafundinum í Hörpu. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert