Bryndís í uppnámi í dómsal: „Allt í einu var hún bara umsnúin“ Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 11. október 2021 15:00 Bryndís Schram bar vitni fyrir dómi í dag í aðalmeðferðinni. Bryndís Schram, eiginkona Jóns Baldvins Hannibalssonar, virtist vera í talsverðu uppnámi þegar hún bar vitni fyrir dómi í dag í máli héraðssaksóknara gegn Jóni Baldvini. Honum er gert að sök að hafa káfað á rassi Carmenar Jóhannsdóttur í matarboði á heimili þeirra hjóna á Spáni í júní 2018.
Viðstödd kvöldverðinn voru Carmen og móðir hennar, Jón Baldvin, Bryndís og íslensk nágrannakona þeirra á Spáni. Þeim ber ekki saman um hvað gerðist þetta kvöld en mæðgurnar segja Jón Baldvin hafa káfað á Carmen. „Þetta hefði þá verið í fyrsta skipti á ævinni sem ég hefði orðið vör við það að maðurinn minn hefði auðmýkt mig með því að strjúka annarri konu,“ sagði Bryndís fyrir dómi í dag. Hún lýsti síðan kvöldinu og aðdraganda þess. Þau hefðu sest niður við matarboðið og hún haldið stutta ræðu til að bjóða alla velkomna. Jón Baldvin Hannibalsson ásamt lögmanni sínum Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni við aðalmeðferðina í dag.vísir/vilhelm „Ég hafði ekki sleppt orðinu þegar Laufey [móðir Carmenar] bara: „Jón Baldvin, nú skalt þú biðjast afsökunar. Þú káfaðir á dóttur minni. Ég er búinn að heyra margar sögur um þig, þú ert ógeðslegur“,“ hermdi Bryndís eftir Laufeyju. Hún segist hafa verið í svo „æðislega góðu skapi“ eftir daginn og með að vera komin með þessa gesti í hús sitt. Þetta hafi því komið alveg flatt upp á hana. Þær Aldís Schram, Margrét Schram og Elísabet Þorgeirsdóttir mættu til að fylgjast með málinu í dag. Margrét og Elísabet hafa stutt Aldísi í málum hennar gegn föður sínum Jóni Baldvini, sem hún hefur sakað um kynferðisbrot gegn sér.vísir/vilhelm Orðin eins og umskiptingur „Allt í einu var hún bara umsnúin,“ sagði Bryndís. „Hún hafði líka sagt mér að hún væri fárveik, með einhverja grindargliðnun eða eitthvað,“ hélt hún áfram og sagði Laufeyju hafa verið á sterkum lyfjum sem hún hafi ekki mátt drekka ofan í. „Ég fattaði það ekki strax en auðvitað var hún búin að drekka frá sér allt vit.“ „Hún jós bara yfir okkur fúkyrðunum,“ sagði Bryndís og þegar hér var komið sögu í vitnisburði hennar hafði hún hækkað róminn mjög og var við það að bresta í grát. „Og ég bara skildi þetta ekki. Þetta var svo falleg stelpa sem ég hafði kynnst á Ísafirði og var nú bara eins og umskiptingur.“ Þeim hjónum og nágrannakonu þeirra ber saman um að Laufey hafi sakað Jón um að hafa káfað á dóttur sinni stuttu eftir að þau höfðu sest til borðs. Þau þvertaka fyrir að Carmen hafi á einhverjum tímapunkti fram að því staðið upp til að hella víni í glös. Að sögn Carmenar og Laufeyjar var það þó svo að Carmen hafði staðið upp frá borði á einum tímapunkti yfir matnum og farið að sækja vínflösku sem var kæld í vaski við hlið borðsins. Hún hafi síðan komið aftur að borðinu og þá staðið við hlið Jóns Baldvins á meðan hún skenkti víni í glösin en hann hafi þá byrjað að strjúka rass Carmenar. Hún hafi stirðnað upp við þetta og fengið áfall, ekki gert neitt í málinu heldur sest aftur við hlið móður sinnar sem hafi þá krafið Jón Baldvin um afsökunarbeiðnina.
Mál Jóns Baldvins Hannibalssonar Dómsmál Kynferðisofbeldi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Engin veit hver hún er“ Erlent Fleiri fréttir Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Sjá meira