Sveindís skoraði með þrumufleyg (myndskeið)

Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði huggulegt mark í dag.
Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði huggulegt mark í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslenska landsliðskon­an Svein­dís Jane Jóns­dótt­ir skoraði sig­ur­mark Íslend­ingaliðs Kristianstad þegar það vann Lin­köp­ing með minnsta mun, 1:0, í sænsku úr­vals­deild­inni í knatt­spyrnu í dag.

Sveindís hefur spilað vel á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku og skorað fimm mörk í 12 byrjunarliðsleikjum með Kristianstad. Sif Atladóttir leikur einnig með liðinu og Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar það.

Markið glæsilega má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert