Viðskipti innlent

Bein út­sending: Rök­styðja þrettándu stýri­vaxta­hækkunina í röð

Atli Ísleifsson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er formaður peningastefnunefndar Seðlabankans.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er formaður peningastefnunefndar Seðlabankans. Vísir/Vilhelm

Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 1,25 prósentustig, í 8,75 prósent.

Um er að ræða þrettándu stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð og hafa stýrivextir ekki verið hærri síðan í febrúar 2010.

Á kynningunni gera Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar og kynna efni Peningamála.

Hægt er að fylgjast með útsendingunni í spilaranum að neðan.



Yfirlýsing peningastefnunefndar 24. maí 2023

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 1,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 8,75%.

Jafnframt hefur nefndin ákveðið að hækka fasta bindiskyldu innlánsstofnana úr 1% í 2%.

Efnahagsumsvif hafa verið kröftug það sem af er ári og samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans er spáð 4,8% hagvexti á árinu í stað 2,6% í febrúar. Þar vega horfur á meiri vexti innlendrar eftirspurnar þungt en einnig er útlit fyrir kröftugri umsvif í ferðaþjónustu.

Verðbólga mældist 9,9% í apríl og jókst lítillega milli mánaða. Undirliggjandi verðbólga heldur áfram að aukast og miklar verðhækkanir mælast í sífellt stærri hluta neyslukörfunnar. Útlit er fyrir að verðbólguþrýstingur verði töluvert meiri í ár og á næsta ári en áður var gert ráð fyrir.

Verðbólguvæntingar til lengri tíma hafa jafnframt hækkað og eru vel yfir markmiði. Aukin hætta er því á að verðbólga reynist þrálát.

Í ljósi þess er nauðsynlegt að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar. Einkum er mikilvægt að koma í veg fyrir víxlverkun hækkandi launa og verðlags, sérstaklega þegar litið er til mikillar spennu í þjóðarbúinu og hversu stutt er í næstu kjarasamningalotu. Horfur eru því á að hækka þurfi vexti enn meira til að tryggja betra jafnvægi í þjóðarbúskapnum og koma verðbólgu í markmið.

Frétt nr. 10/2023

24. maí 2023





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×