„Aldrei verið eins mikilvægt fyrir hreyfinguna að vera sameinuð“ Sylvía Hall skrifar 17. október 2020 12:28 Ragnar Þór mun bjóða sig fram til embættis varaforseta ASÍ. Vísir/Vilhelm
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir framboð sitt til embættis varaforseta Alþýðusambandsins fyrst og fremst vera til þess fallið að auka samstöðu innan verkalýðshreyfingarinnar. Undanfarið ár innan Alþýðusambandsins hafi einkennst af togstreitu en nú þurfi allir að stefna í sömu átt. „Við teljum að það hafi aldrei verið eins mikilvægt og núna að hreyfingin standi þétt saman í þeim verkefnum sem fram undan eru, varðandi heimilin og einstaklinga, þegar fer að kreppa að,“ segir Ragnar Þór í samtali við fréttastofu. Framboðið sýni vilja hans til þess að leggja sitt af mörkum. „Þetta er fyrst og fremst leið til þess að þétta raðirnar eftir litríkt ár innan Alþýðusambandsins.“ Allt gert í góðri sátt Aðspurður hvort hann bjóði sig fram vegna óánægju með núverandi forystu segir hann svo alls ekki vera. „Þetta er allt gert í góðri sátt og ég er mjög sáttur við það upplegg sem við ætlum að reyna að byggja á eftir ASÍ þingið.“ Tvö varaforsetaembætti eru innan Alþýðusambandsins. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, er 1. varaforseti ASÍ og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er 2. varaforseti. Þó liggur fyrir tillaga um að fjölga varaforsetum og býst Ragnar við því að bæði Kristján og Sólveig bjóði sig aftur fram. „Það er hluti af því að stækka forsetateymið, og þar af leiðandi fá öll samböndin og stærstu aðilana innan Alþýðusambandsins saman í eitt öflugt forsetateymi til þess að stýra okkur áfram í þeim málum sem fram undan eru.“ Hann segir nauðsynlegt á óvissutímum sem þessum að verkalýðshreyfingin standi sterk. Það eigi við nú sem áður. „Það hefur aldrei verið eins mikilvægt fyrir hreyfinguna að vera sameinuð og sterk.“ Kristján Þórður Snæbjarnarson og Sólveig Anna Jónsdóttir eru varaforsetar ASÍ. Ragnar býst við því að þau bjóði sig fram aftur.Vísir/Vilhelm Stærsta málið að bregðast við tekjufalli Þrátt fyrir krepputímar blasi við segir Ragnar veturinn leggjast ágætlega í sig. Nú þegar sé hafin mikil vinna við tillögur um hvernig eigi að bregðast við tekjufalli heimila og einstaklinga og er verið að setja þær tillögur saman. „Vonandi náum við árangri þar, það er forgangsmálið núna. Við þurfum að grípa fólkið sem er að taka ákvörðun um hvort það eigi að borga reikningana eða kaupa í matinn. Við verðum núna að leggjast öll á eitt og bregðast við vanda þessa hóps,“ segir Ragnar, sem vonar að stjórnvöld taki vel í tillögurnar. Heildaratvinnuleysi var 9 prósent í september og spáir Vinnumálastofnun að almennt atvinnuleysi aukist nokkuð í október og nóvember. Alls voru 18.443 einstaklingar atvinnulausir í almenna bótakerfinu í lok septembermánaðar og 3.319 í minnkuðu starfshlutfalli. Staðan er verst á Suðurnesjum þar sem atvinnuleysi fór upp í 19,6 prósent í september. Ragnar segir sjá svipaða þróun meðal félagsmanna VR. „Við erum að sjá miklu meira atvinnuleysi á Suðurnesjunum en á höfuðborgarsvæðinu.“
Vinnumarkaður Kjaramál Félagasamtök Tengdar fréttir Býður sig fram til varaforseta ASÍ Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hyggst bjóða sig fram til embættis varaforseta á þingi Alþýðusambands Íslands í næstu viku. 17. október 2020 08:12 Óttast að atvinnuleysi í Reykjanesbæ verði komið í 25% fyrir jól Spár Vinnumálastofnunar gera ráð fyrir því að í Reykjanesbæ verði atvinnuleysi komið í 25% fyrir jól. 14. október 2020 07:40 Erlendir borgarar og ungt fólk tekið þungt högg í faraldrinum Erlendir ríkisborgarar og ungt fólk hefur tekið þyngsta efnahagslega höggið vegna kórónuveirufaraldursins. Framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands segir þörf á sértækum vinnumarkaðsaðgerðum til þess að mæta þeim hópum. 15. október 2020 19:26 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Rússar og Bandaríkjamenn í návígi á herstöð í Níger Fréttir „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Fleiri fréttir Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Sjá meira
Býður sig fram til varaforseta ASÍ Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hyggst bjóða sig fram til embættis varaforseta á þingi Alþýðusambands Íslands í næstu viku. 17. október 2020 08:12
Óttast að atvinnuleysi í Reykjanesbæ verði komið í 25% fyrir jól Spár Vinnumálastofnunar gera ráð fyrir því að í Reykjanesbæ verði atvinnuleysi komið í 25% fyrir jól. 14. október 2020 07:40
Erlendir borgarar og ungt fólk tekið þungt högg í faraldrinum Erlendir ríkisborgarar og ungt fólk hefur tekið þyngsta efnahagslega höggið vegna kórónuveirufaraldursins. Framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands segir þörf á sértækum vinnumarkaðsaðgerðum til þess að mæta þeim hópum. 15. október 2020 19:26