Gerði langan samning við Val

Róbert Aron Hostert í leik með Val gegn Haukum.
Róbert Aron Hostert í leik með Val gegn Haukum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Valsmenn skýrðu frá því í dag að handknattleiksmaðurinn Róbert Aron Hostert hefði skrifað undir nýjan samning við félagið til hálfs þriðja árs.

Samningurinn gildir út tímabilið 2023-2024 en Róbert hefur leikið með Valsmönnum frá 2018 og verið í stóru hlutverki, bæði í sóknarleik og varnarleik Hlíðarendaliðsins sem varð bæði Íslands- og bikarmeistari á síðasta ári.

Róbert, sem er þrítugur að aldri, lék áður með ÍBV og Fram og danska liðinu Mors/Thy.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert