Leggja til að lausagöngugarður fyrir hunda verði á Klambratúni Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 24. nóvember 2021 10:35 Hundurinn þarna í bakgrunninum gæti, í náinni framtíð, fengið að hlaupa um laus á Klambratúni, annað en á þessari mynd. Vísir/Vilhelm Meðal tillaga sem lagðar hafa verið fram af Reykjavíkurborg um hverfisskipulag Norðurmýrar, Holta og Hlíða er að breyta hluta af útivistarsvæðinu á Klambratúni í lausagöngugarð fyrir hunda. Enginn slíkur garður er í Reykjavík vestan Elliðaáa.
Tillagan var kynnt á föstudag fyrir íbúum hverfanna en auk lausagöngugarðsins hefur verið lagt til að setja upp á Klambratúni rósagarð. Klambratún hefur í áratugi verið vinsælt útivistarsvæði meðal Reykvíkinga. Inni á svæðinu er ýmiss gróður auk stíga og bekkja en þar eru jafnframt leiksvæði fyrir börn, sparkvöllur, körfuboltavöllur og strandblakvöllur. Klambratún er þá þegar vinsælt útivistarsvæði fyrir hundaeigendur í aðliggjandi hverfum og þar má iðulega sjá hunda á vappi með eigendum sínum alla daga. Vísir greindi frá því fyrr á þessu ári að hundaeigendur hafi aldrei verið fleiri hér á landi en hundaskortur var á Íslandi fyrr á þessu ári vegna eftirspurnar. Lengi hefur það tíðkast meðal hundaeigenda í nágrenni Klambratúns að hittast alla „rauðmerkta“ daga í dagatalinu á Klambratúni á milli klukkan níu og tíu á morgnanna. Hittast þeir til að sýna sig og sjá aðra, og það sem er kannski mikilvægara, til að hundarnir þeirra fái að sýna sig og sjá aðra. Hefur það tíðkast að þeir safnist saman í skeifunni í norðausturhluta garðsins við horn Lönguhlíðar og Flókagötu. Hundarnir hafa þó kannski ekki fengið að njóta sín eins vel og þeir gætu. Þeir þurfa nefnilega að vera í bandi á Klambratúni. Lagt er þó til nú að í stað hverfismiðstöðvarinnar, sem er á milli Kjarvalsstaða og skeifunnar, komi afgirtur garður með grasflötum, stígum, bekjum og lítilli tjörn þar sem lausaganga hunda verði leyfð. Mannvirki og malbikuð bílaplön myndu þá hverfa frá og í staðin yrði garðurinn stækkaður. Þegar stendur til, samkvæmt deiliskipulagi, að hverfismiðstöðin verði látin fara. Þegar eru nokkur svæði í Reykjavík þar sem lausaganga hunda er leyfð. Þau stærri eru þó öll fyrir austan Elliðaár og því kannski óhentugt fyrir fólk sem býr í vestari byggðum borgarinnar. Þrjú svæði eru þó vestan Elliðaár þar sem hleypa má hundum lausum en þau eru öll fremur lítil. um er að ræða einskonar hundagerði, eitt við umferðarmiðstöð BSÍ í Vatnsmýri, annað á milli Suðurlandsbrautar og Engjavegar í Laugardal, og það þriðja í Breiðholti, milli Arnarbakka og Norðurfells. Nokkur stærri svæði eru þó austar í borginni. Lausaganga hunda er leyfð á Geirsnefi, á Reynisvatnsheiði, þó ekki á göngu-, reið og akstursvegum, og svo á Geldinganesi. Þau svæði eru þó öll nokkuð stór og kannski hentugri fyrir hunda sem þurfa á mikilli hreyfingu að halda.
Dýr Skipulag Reykjavík Hundar Tengdar fréttir Ræður fólki frá því að kaupa sér flatnefjuð gæludýr Örkumlun og styttri lífími er á meðal þess sem getur fylgt flötu trýni, sem ræktað hefur verið upp í ýmsum gæludýrategundum. Dýralæknir ræður fólki frá því að fá sér slík dýr og kallar eftir stefnubreytingu hjá ræktendum. 28. október 2021 21:00 Dróni kemur hundum sem eru fastir við eldgosið til bjargar Drónaeigandi á La Palma-eyju hefur fengið leyfi yfirvalda til þess að freista þess að bjarga þremur veikburða hundum sem eru fastir í grennd við Cumbre Vieja eldfjallið. 19. október 2021 22:36 Hjól og hundar Á ferðum mínum í sumar, bæði til vinnu sem og í fríum, tók ég eftir jákvæðum breytingum sem snúa að útivist hjá landanum. Í fyrsta lagi var allt löðrandi af hjólreiðamönnum um víðan völl og nánast annar hver bíll var með hjól á þaki eða hangandi aftan á bílnum. 16. ágúst 2021 13:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Erlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Innlent „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Fleiri fréttir Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Sjá meira
Ræður fólki frá því að kaupa sér flatnefjuð gæludýr Örkumlun og styttri lífími er á meðal þess sem getur fylgt flötu trýni, sem ræktað hefur verið upp í ýmsum gæludýrategundum. Dýralæknir ræður fólki frá því að fá sér slík dýr og kallar eftir stefnubreytingu hjá ræktendum. 28. október 2021 21:00
Dróni kemur hundum sem eru fastir við eldgosið til bjargar Drónaeigandi á La Palma-eyju hefur fengið leyfi yfirvalda til þess að freista þess að bjarga þremur veikburða hundum sem eru fastir í grennd við Cumbre Vieja eldfjallið. 19. október 2021 22:36
Hjól og hundar Á ferðum mínum í sumar, bæði til vinnu sem og í fríum, tók ég eftir jákvæðum breytingum sem snúa að útivist hjá landanum. Í fyrsta lagi var allt löðrandi af hjólreiðamönnum um víðan völl og nánast annar hver bíll var með hjól á þaki eða hangandi aftan á bílnum. 16. ágúst 2021 13:01