Samtök Navalní líklega bönnuð í dag Kjartan Kjartansson skrifar 9. júní 2021 10:35 Alexei Navalní dúsir í fangelsi næstu tvö árin. Bandamenn hans horfa nú fram á að vera sviptir kjörgengi og jafnvel fangelsaðir. AP/Alexander Zemlianitsjenkó Búist er við því að dómstóll í Moskvu fallist á kröfu saksóknara um að lýsa samtök Alexeis Navalní, stjórnarandstöðuleiðtoga, ólögleg öfgasamtök í dag. Félagar í samtökunum gætu átt yfir höfði sér fangelsisdóma auk þess sem þeim yrði bannað að bjóða sig fram í kosningum í haust með nýjum lögum.
AP-fréttastofan segir að von sé á úrskuði í málinu síðar í dag. Sjóður Navalní gegn spillingu hefur í gegnum tíðina varpað ljósi á meinta spillingu Vladímírs Pútín forseta og ríkisstjórnar hans. Þá hafa svæðisskrifstofur um allt land hjálpað kjósendum að finna frambjóðendur sem geta velt bandamönnum Pútín úr sessi í kosningum. Navalní var sjálfur fangelsaður í byrjun árs þegar hann sneri heim til Rússlands eftir nokkurra mánaða dvöl í Þýskalandi þar sem hann lá á sjúkrahúsi vegna eitrunar sem hann varð fyrir í fyrra. Rússnesk yfirvöld töldu Navalní hafa rofið skilorð eldri dóms sem hann hlaut með því að gefa sig ekki reglulega fram við þau á meðan hann lá í dái í Þýskalandi. Á sama tíma og niðurstöðu dómstólsins er beðið vinna flokksbræður Pútín á rússneska þinginu að lögum sem myndu banna hverjum þeim sem tengist öfgasamtökum að bjóða sig fram til opinbers embættis. Fallist dómstóllinn á kröfu saksóknara um að lýsa félagasamtök Navalní öfgasamtök verða vonir bandamanna Navalní um að koma fólki inn á þing að engu. Fólk sem hefur unnið með samtökunum, látið fé af hendi rakna til þeira eða jafnvel aðeins deilt efni frá þeim gæti átt fangelsisdóma yfir höfði sér. Þingið hefur til meðferðar frumvarp sem legði Bandamenn Navalní lokuðu svæðisskrifstofunum í apríl eftir að saksóknari fór fram á lögbann á starfsemi þeirra. Vildu þeir með því koma í veg fyrir að fólk ætti á hættu að vera handtekið. Ríkisstjórn Pútín stendur nú í mikilli herferð gegn stjórnarandstöðunni í landinu í aðdraganda þingkosninganna. Fjöldi stjórnarandstæðinga hefur verið handtekinn eða sætt húsleit undanfarnar vikur.
Rússland Eitrað fyrir Alexei Navalní Tengdar fréttir Enn einn stjórnarandstæðingurinn handtekinn í Rússlandi Rússnesk yfirvöld handtóku fyrrverandi forsvarsmann stjórnarandstöðuhóps sem olíufurstinn Mikhail Khodorkovsky stofnaði. Samtökin sögðust ætla að hætta starfsemi til þess að forða félögum frá því að vera handteknir í síðustu viku. 1. júní 2021 10:21 Leggja fram frekari gögn til að banna samtök Navalní Saksóknari í Moskvu lagði fram mikið magn gagna til að styðja kröfu sína um að dómari banni starfsemi samtaka Alexeis Navalní gegn spillingu í dag. Ekki er ljóst á hvaða forsendu saksóknarinn byggir kröfuna um að samtökin verði lýst öfgahreyfing þar sem leynd liggur yfir þeim gögnum sem hann lagði upphafleg fram. 17. maí 2021 10:52 Lögmaður samtaka Navalnís handtekinn í Moskvu Ívan Pavolv, lögmaður and-spillingarsamtaka Alexeis Navalní, hefur verið handtekinn. Hann er sakaður um að hafa lekið upplýsingum um rannsókn og var handtekinn nokkrum klukkustundum áður en hann átti að mæta í dómsal þar sem hann er verjandi fyrrverandi blaðamanns sem hefur verið sakaður um landráð. 30. apríl 2021 10:34 Horaður Navalní lokar skrifstofum til að forða bandamönnum Alexei Navalní, rússneski stjórnarandstöðuleiðtoginn, var krúnurakaður og lítið meira en skinn og bein þegar hann kom fram opinberlega í fyrsta skipti frá því að hann var fangelsaður í dag. Á sama tíma tilkynnti náinn samverkamaður hans að skrifstofum samtaka hans víða um Rússland yrði lokað til að vernda félaga og bandamenn. 29. apríl 2021 18:18 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Innlent Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Innlent Fleiri fréttir Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Sjá meira
Enn einn stjórnarandstæðingurinn handtekinn í Rússlandi Rússnesk yfirvöld handtóku fyrrverandi forsvarsmann stjórnarandstöðuhóps sem olíufurstinn Mikhail Khodorkovsky stofnaði. Samtökin sögðust ætla að hætta starfsemi til þess að forða félögum frá því að vera handteknir í síðustu viku. 1. júní 2021 10:21
Leggja fram frekari gögn til að banna samtök Navalní Saksóknari í Moskvu lagði fram mikið magn gagna til að styðja kröfu sína um að dómari banni starfsemi samtaka Alexeis Navalní gegn spillingu í dag. Ekki er ljóst á hvaða forsendu saksóknarinn byggir kröfuna um að samtökin verði lýst öfgahreyfing þar sem leynd liggur yfir þeim gögnum sem hann lagði upphafleg fram. 17. maí 2021 10:52
Lögmaður samtaka Navalnís handtekinn í Moskvu Ívan Pavolv, lögmaður and-spillingarsamtaka Alexeis Navalní, hefur verið handtekinn. Hann er sakaður um að hafa lekið upplýsingum um rannsókn og var handtekinn nokkrum klukkustundum áður en hann átti að mæta í dómsal þar sem hann er verjandi fyrrverandi blaðamanns sem hefur verið sakaður um landráð. 30. apríl 2021 10:34
Horaður Navalní lokar skrifstofum til að forða bandamönnum Alexei Navalní, rússneski stjórnarandstöðuleiðtoginn, var krúnurakaður og lítið meira en skinn og bein þegar hann kom fram opinberlega í fyrsta skipti frá því að hann var fangelsaður í dag. Á sama tíma tilkynnti náinn samverkamaður hans að skrifstofum samtaka hans víða um Rússland yrði lokað til að vernda félaga og bandamenn. 29. apríl 2021 18:18