Ók Angjelin í Rauðagerði en segist ekkert hafa vitað um tilganginn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. júní 2021 16:00 Fjöldi karla og ein kona voru handtekin og úrskurðuð í gæsluvarðhald í tengslum við rannsóknin á morðinu í Rauðagerði. Fjögur voru á endanum ákærð. Vísir/vilhelm Shpetim Qerimi, einn fjögurra sem ákærður er fyrir manndráp í Rauðagerðismálinu svokallaða, hefur verið úrskurðaður í farbann til 1. október. Aðalmeðferð í málinu er fyrirhuguð í september.
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á kröfu héraðssaksóknara um farbannið á dögunum. Shpetim er gefið að sök að hafa ekið Angjelin Sterkaj í Rauðagerði og hinkrað þar eftir honum. Angjelin er gefið að sök að hafa skotið Armando Bequiri níu skotum og svo gefa Shpetim merki um að sækja sig aftur. Óku þeir sem leið lá út úr bænum og norður í land þar sem Angjelin er sagður hafa losað sig við morðvopnið á leiðinni. Auk Shpetim og Angjelin eru Murat Selivrada og Claudia Sofia Coelho Carvahlo ákærð fyrir manndráp. Ákæruvaldið byggir á því að um verkskipta aðild fjögurra ákærðu hafi verið að ræða. Murat og Claudia hafi fylgst með ferðum bíls og komið skilaboðum áfram er varðaði ferðir Armando. Fjallað var um málið í Kompás í maí þar sem rætt var við ekkju Armando. Ótrúverðugur framburður Í kröfu sinni fyrir farbanni benti saksóknari á að framburður Shpetim hafi verið ótrúverðugur varðandi atburðarásina 13. febrúar. Hann viðurkenni að hafa ekið með Angjelin í Rauðagerði en ekki vita hver hafi búið þar eða hvað stæði til. Er þessi framburður að mati ákæruvaldsins ótrúverðugur sérstaklega í ljósi þess að ákærði hafði komið á heimili Armando auk þess sem hann ók með Murat fyrr um daginn áður en hann hitti Angjelin. Þeir Murat hafi gefið ótrúverðugar og ósamhljóða skýringar á þeirri samverustund. Þá liggi fyrir að 12. febrúar, degi fyrir morðið, hittust Shpetim og Angjelin þar sem Shpetim og Claudia tóku við tösku frá Angjelin sem í var byssa. Geymdi Shpetim töskuna til næsta dags. Shpetim hafi sagst ekki hafa vitað hvað var í töskunni en það telur ákæruvaldið ótrúverðugt. Byssa með hljóðdeyfi upp á 40 sentímetra Ákæruvaldið bendir einnig á að Angjelin fór úr bílnum sem ákærði ók vopnaður skammbyssu og hljóðdeyfi og kom til baka í bílinn með þetta samsett og setti á gólf bifreiðarinnar. Lengd byssunnar með hljóðdeyfi sé rúmir 40 sentímetrar. Því sé ekki mjög trúverðugt að Shpetim hafi ekki vitað hvað til stóð. Shpetim lauk afplánun vegna annars máls þann 3. júní. Saksóknari benti á að hann væri erlendur ríkisborgari og gefið að sök alvarlegt brot þar sem viðurlögin eru þung fangelsisvist. Mikil hætta sé á að hann hafi úr landi til að koma sér undan fangelsi. Því þurfi hann að sæta farbanni. Leó Daðason er verjandi Shpetim.Vísir/Vilhelm Héraðsdómur taldi framlögð gögn sýna ótvírætt að á ákærða hvíli rökstuddur grunur um aðild að þeim verknaði sem lögregla rannsakar. Þá gæti Shpetim torveldað rannsókn málsins eigi hann þess kost að komast úr landi á þessu stigi rannsóknarinnar. Því var fallist á beiðni saksóknara. Leó Daðason, lögmaður Shpetim, kærði úrskurðinn til Landsréttar sem féllst á niðurstöðu héraðsdóms. Shpetim þarf því að sæta farbanni til 1. október.
Morð í Rauðagerði Dómsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Sjá meira