Dramatík í Íslendingaslag

Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn með Rosengård.
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn með Rosengård. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Caroline Seger reyndist hetja Rosengård þegar liðið fékk St. Pölten í heimsókn í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu í Malmö í dag.

Leiknum lauk með 2:2-jafntefli en Seger jafnaði metin fyrir Rosengård í uppbótartíma.

Mateja Zver frá Slóveníu sem lék með Þór/KA í fjögur ár kom St. Pölten yfir á 21. mínútu og hún bætti við öðru marki strax í upphafi síðari hálfleiks.

Sanne Troelsgaard minnkaði muninn fyrir Rosengård á 68. mínútu áður en Seger tryggði sínu liði jafntefli.

Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Rosengård en Kristrún Rut Antonsdóttir kom inn á sem varamaður hjá St. Pölten á 76. mínútu.

Liðin mætast á nýjan leik í Austurríki eftir viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert