Skrifstofa Mannlífs eftir harðsvírað innbrot: „Ekki menn ruglaðir af dópi, þetta eru útsendarar“ Kolbeinn Tumi Daðason og Snorri Másson skrifa 21. janúar 2022 13:00 Reynir hugar að bílnum sínum við skrifstofur Mannlífs í Ármúla. Vísir/Vilhelm Vefurinn Mannlíf.is lá niðri fram á miðjan dag eftir að brotist var inn á skrifstofur miðilsins í nótt og öllu eytt út af síðunni. Reyni Traustasyni ritstjóra er illa brugðið; honum líður eins og honum hafi verið misþyrmt, stunginn í bakið. Hér sé um verk útsendara að ræða.
Reynir staðfesti innbrotið við fréttastofu um hádegisbil. Hann greindi frá því í gær að brotist hefði verið inn í bíl hans við Úlfarsfell þar sem hann fór í gönguferð. Innbrotsþjófurinn hafi að líkindum komist inn með lyklum Reynis sem teknir voru í bíl hans við Úlfarsfell í gær. Lögreglan mætti á vettvang í morgun, tók fingraför og skýrslu. Reynir segir ákveðnar vísbendingar um það hver geti átt í hlut. „Þetta eru menn sem kunna til verka. Það liggur alveg fyrir. Þeir fara inn á vefinn, eyða og hafa fyrir því að tæma úr ruslinu og eyða greinunum. Það er engin tilviljun fólgin í þessu.“ Þið hafið verið að birta undanfarna daga greinar um valdamikla menn. Hafið þið einhverja grunaða? „Það er svo annar kapítúli. Við höfum verið að birta greinar um Róbert Wessman, sem hefur verið mjög ósáttur og viljað fá öll gögn sem ég bý yfir. Við sögðum frá því að lögfræðistofa í London sem kostar ekkert smáræði, sama stofa og vann fyrir Harvey Weinstein, er að vinna fyrir þá í því að krefja okkur um öll gögn sem snúa að Róbert Wessman. Nú get ég ekki látið blessaðan karlinn hafa þessi gögn. Þetta er allt horfið,“ segir Reynir. Vísir/Vilhelm „Við munum ná í gaurinn á hinum endanum“ Gögn og allur vefur Mannlífs hefur legið niðri í alla nótt eftir að öllu var eytt út. Vonast er til að verulegur hluti greinanna verði endurheimtur, en aðgerðin virtist skipulögð. Reynir segir að mennirnir að baki innbrotinu verði fundnir.Vísir/Vilhelm „Ég er búinn að vera í þessu í 25 ár og ég hef aldrei kynnst annarri eins forherðingu. Ég er eltur,“ segir Reynir. „Þetta er einhvers konar viðbjóður sem er í gangi. Ég hef áður fengist við svona mál en þetta er með því allra harðsvírasta sem ég man. Þetta eru ekki menn ruglaðir af dópi eða að gera eitthvað óskipulagt, þetta eru útsendarar. Það eina sem ég get sagt er að manni líður eins og manni hafi verið misþyrmt eða stunginn í bakið. En ég heiti því að við munum ná í gaurinn á hinum endanum.“
Fjölmiðlar Lögreglumál Reykjavík Tengdar fréttir „Ég er orðinn einhver sérkapítuli í þessu landi“ Reynir Traustason segir dóm Landsréttar óskiljanlegan með öllu og vill áfrýja. 11. júní 2021 15:50 Birting minningargreina Morgunblaðsins bönnuð á öðrum miðlum Morgunblaðið hefur nú sett þann varnagla á að ekki er leyfilegt að birta efni úr minningargreinum, sem birtast í blaðinu, á öðrum miðlum án leyfis. Ástæða þess er að birting slíks efnis hefur fallið í grýttan jarðveg hjá aðstandendum látinna. 12. mars 2021 23:11 Reynir Trausta og Trausti festa kaup á Mannlífi Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, og Trausti Hafsteinsson fréttastjóri hafa keypt vörumerkið Mannlíf og lénið mannlif.is af Birtingi útgáfufélagi. 10. febrúar 2021 18:11 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent Fleiri fréttir Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Sjá meira
„Ég er orðinn einhver sérkapítuli í þessu landi“ Reynir Traustason segir dóm Landsréttar óskiljanlegan með öllu og vill áfrýja. 11. júní 2021 15:50
Birting minningargreina Morgunblaðsins bönnuð á öðrum miðlum Morgunblaðið hefur nú sett þann varnagla á að ekki er leyfilegt að birta efni úr minningargreinum, sem birtast í blaðinu, á öðrum miðlum án leyfis. Ástæða þess er að birting slíks efnis hefur fallið í grýttan jarðveg hjá aðstandendum látinna. 12. mars 2021 23:11
Reynir Trausta og Trausti festa kaup á Mannlífi Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, og Trausti Hafsteinsson fréttastjóri hafa keypt vörumerkið Mannlíf og lénið mannlif.is af Birtingi útgáfufélagi. 10. febrúar 2021 18:11