Uppgjör fyrsta ársfjórðungs Haga hf., sem tekur til tímabilsins 1. mars til 31. maí 2022, verður birt 30. júní næstkomandi. Samkvæmt drögum að uppgjörinu verður EBITDA afkoma félagsins umfram áætlanir.

Aukna afkomu félagsins á ársfjórðungnum má fyrst og fremst rekja til betri afkomu hjá Olís, að því er kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.

Gera má ráð fyrir að EBITDA afkoma á fyrsta ársfjórðungi verði á bilinu 2,6-2,7 milljarðar króna en til samanburðar var EBITDA afkoma á fyrsta ársfjórðungi í fyrra tæplega 2,3 milljarðar króna.

Í ljósi þessa og samkvæmt áætlun stjórnenda á afkomu félagsins það sem eftir lifir rekstrarárs þá hefur EBITDA afkomuspá verið hækkuð um 300 milljónir, að því er kemur fram í tilkynningunni. Gert er ráð fyrir að EBITDA afkoma samstæðu Haga fyrir rekstrarárið 2022-23 verði á bilinu 10,2-10,7 milljarðar króna.