Starfsmanni í Skarðshlíðarskóla sagt upp vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. janúar 2021 15:55 Skarðshlíðarskóli í Hafnarfirði. Starfsmanni við Skarðshlíðarskóla hefur verið sagt upp störfum vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni. Þetta herma heimildir fréttastofu. Skólastjóri í Skarðshlíðarskóla hefur eftir lögreglu að ekkert bendi til þess að nokkuð saknæmt hafi átt sér stað innan veggja skólans eða í skólastarfi á vegum skólans.
Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri Skarðshlíðarskóla, segir í tölvupósti til foreldra og forráðamanna nemenda í 1. til 9. bekk skólans vilja koma ákveðnum hlutum á framfæri til að fyrirbyggja og leiðrétta mögulegan misskilning í ljósi þess að málið sé komið í almanna umfjöllun innan skólasamfélagsins. Ingibjörg segir lögreglu fara með rannsókn og skoðun málsins með hliðsjón af starfi og stöðu starfsmannsins. Stjórnendateymi skólans hafi strax verið upplýst um aðstæður og eðli málsins og stjórnendur hafi unnið málið í samvinnu við starfsfólk fag- og stoðsviða sveitarfélagsins. Ríkisútvarpið greindi frá því í desember að barnaníðsefni hefði fundist á heimili mannsins. Talið væri að efnið hefði verið framleitt hér á landi. Mun ekki snúa aftur til starfa „Strax var farið yfir verkferla innan skólans og aðkomu viðkomandi starfsmanns að starfi með börnum og tryggt að fyrirfram skilgreint verklag hafi verið viðhaft. Málið er enn til rannsóknar og á mjög viðkvæmu stigi,“ segir Ingibjörg. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu, bæði í desember og aftur nú í janúar, þá sé ekkert sem bendi til þess að nokkuð saknæmt hafi átt sé stað innan veggja skólans eða í skólastarfi á vegum skólans. Ingibjörg segir málið í réttum farvegi hjá lögreglu og starfsmaðurinn muni ekki snúa aftur til starfa. Frekari upplýsingar ekki veittar „Ekki er hægt að gefa upp ítarlegri upplýsingar um þetta einstaka mál til að tryggja megi rannsóknarhagsmuni, trúnað og persónuvernd hlutaðeigandi.“ Ingibjörg telur rétt að árétta sérstaklega að allir þeir sem ráðnir séu til starfa við grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar þurfi að skila inn sakarvottorði þegar þeir hefja störf. Óheimilt sé að ráða einstakling til starfa við grunnskóla sem hlotið hafi refsidóm fyrir kynferðisbrot. „Ef upp koma upplýsingar um refsiverða háttsemi eftir að starfsmaður hefur störf er brugðist við slíku í samræmi við eðli brots.“
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Skóla - og menntamál Lögreglumál Hafnarfjörður Mest lesið Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Hver er Kári Hansen? Innlent Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Erlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Erlent Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Umferðartafir vegna elds í tengivagni Innlent Aukin virkni í gosinu Innlent Fleiri fréttir Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Sjá meira