Körfubolti

Martin með góða innkomu í naumum sigri

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Martin Hermannsson átti góða innkomu af bekknum hjá Valencia í kvöld.
Martin Hermannsson átti góða innkomu af bekknum hjá Valencia í kvöld. Oscar J. Barroso/Getty Images

Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermansson kom inn af bekk Valencia er liðið marði eins stigs sigur á Monbus Obradoiro í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld, lokatölur 79-78 Valencia í vil.

Leikurinn var jafn framan af en gestirnir í Valencia voru mun betri í öðrum leikhluta og leiddu með sex stigum í hálfleik. Staðan þá 39-33. Í síðari hálfleik komu heimamenn í Obradoiro sterkir til leiks og var staðan orðin jöfn undir lok leiks. Það fór þó svo að Valencia hafði á endanum betur með eins stigs mun eins og áður sagði, lokatölur 79-78.

Martin nýtti þær tæpu 16 mínútur sem hann lék í kvöld einkar vel. Skoraði hann sjö stig ásamt því að gefa þrjár stoðsendingar og taka tvö fráköst.

Var þetta annar sigur Valencia í röð og er liðið nú komið í 8. sæti spænsku deildarinnar með fjóra sigra í sjö leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×