Katrín um skoðanakönnun Maskínu: Erum ekki að uppskera sama og síðast Þorgils Jónsson skrifar 23. september 2021 20:14 Katrín Jakobsdóttir og Bjarni Benediktsson í leiðtogakappræðunum í kvöld. Leiðtogar flokkanna voru misánægðir með fylgið, en bjartsýn fyrir framhaldið fram að kjördag. Vísir/Vilhelm Forystufólk stjórnmálaflokkanna var missátt við niðurstöðu skoðanakönnunar Maskínu sem birt var í kvöldfréttum Stöðvar 2, þegar þau voru spurð út málið í leiðtogaumræðunum sem standa nú yfir. Öll voru þau þó bjartsýn með framhaldið.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ljóst að Vinstri hreyfingin grænt framboð sé að tapa fylgi frá síðustu kosningum ef niðurstaðan verður í takt við skoðanakönnun Maskínu fyrir Stöð 2. Þar eru Vinstri Græn að tapa finn og hálfu prósentustigi og fjórum af 11 þingmönnum. Staðan komi þó ekki á óvart að sögn Katrínar. „Við höfum legið á þessu bili 10-12% misserum eða árum saman. Það kom strax fram í skoðanakönnunum snemma eftir að þessi ríkisstjórn var mynduð að við vorum að missa töluvert fylgi. Þó að margt hafi gengið vel og mörg af okkar málum hafi fengið fram að ganga þá erum við ekki að uppskera það sama og síðast.“ Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sem fær einungis 20,6% fylgi í þessari könnun, segist viss um að niðurstaðan verði önnur. „Ég er viss um að þetta endar á betri stað og raunar ótrúlega lítið sem vantar upp á til að ríkisstjórnin haldi velli.“ Hann hafi ekki áhyggjur af þessari könnun og sé viss um að niðurstaðan verði betri. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, sem fer úr 10,7% upp í 13,4% samkvæmt könnuninni, sagði að könnunin liti vel út, en bestu fréttirnar væru að Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra héldist inni, en hans sæti hefur staðið tæpt í könnunum. Klippa: Formennirnir um nýjustu skoðanakönnunina Viðreisn fer úr 6,7% upp í 11,4% og fagnaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður flokksins, því. Þetta væri í takt við það sem frambjóðendur heyrðu frá fólki á ferðum sínum. Logi Einarsson, formaður Samfylkingar, sem stendur hérumbil í stað frá niðurstöðu síðustu kosninga, sagðist bjartsýnn um að kjósendur myndu taka við sér. Sósíalistaflokkurinn kemur sterkur inn í sínum fyrstu alþingiskosningum og mælist nú með 6,6% fylgi og fjóra þingmenn. Hann gagnrýndi hina flokkana fyrir að leggja steina í götu nýrra framboða, en fagnaði þessum góða árangri. Flokkur fólksins mælist rétt undir kjörfylgi, með 5,6% og 3 þingmenn, en Inga Sæland, formaður flokksins, sagðist hafa áhyggjur af því ef Guðmundur Ingi Kristinsson myndi falla út í Suðvesturkjördæmi. Hún væri þó vongóð og klykkti út með „Bjartsýni og bros bjarga deginum.“ Miðflokkurinn hefur ekki verið að koma vel út úr könnunum síðustu mánuði en mælist að þessu sinni með 7,1% fylgi, miðað við 10,9% sem þau fengu í kosningum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður fagnaði því, og sagði að flokkurinn hafi ekki komið jafnvel út úr könnunum Maskínu um langa hríð. Björn Leví Gunnarsson frá Pírötum, sem fara úr 9,2% í kosningum upp í 11,3% í könnuninni, sagði að staða þeirra væri fín og stæði víða tæpt með þingmenn. Hann taldi víst að þau myndu ná inn þingmanni í Suðurkjördæmi.
Alþingiskosningar 2021 Skoðanakannanir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Nærri fjörutíu taldir af eftir loftárásir Ísraela á Sýrland Erlent Hvessir víðast hvar síðdegis Veður Fleiri fréttir Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sjá meira