Bertheussen dæmd í tuttugu mánaða fangelsi Atli Ísleifsson skrifar 15. janúar 2021 12:53 Húsleit var gerð á heimili Laila Bertheussen og dómsmálaráðherrans Tor Mikkel Wara á vordögum 2019. EPA Dómstóll í Noregi dæmdi í morgun Lailu Anitu Bertheussen, sambýliskonu dómsmálaráðherrans fyrrverandi, Tor Mikkel Wara, í tuttugu mánaða fangelsi fyrir hótanir og árás á æðstu stofnanir norska ríkisins.
Bertheussen var ákærð fyrir að hafa kveikt í bíl hennar og Wara, bera ljúgvitni og hótað öðrum ráðherra í ríkisstjórn Noregs, en hún var sýknuð í þeim ákærulið sem sneri að því að bera ljúgvitni. NRK segir frá . Mikið hefur verið fjallað um málið í norskum fjölmiðlum síðustu mánuði, en í máli saksóknara var Bertheussen sökuð um að hafa með gjörðum sínum ætlað að skaða aðstandendur leikritsins Ways of Seeing, á þann veg að láta það líta út fyrir að þeir hafi staðið að baki hótununum og íkveikju. Bertheussen neitaði sök í málinu. Dómari var sammála saksóknara um að Bertheussen hafi ætlað sér að koma sök á aðstandendur leikritsins. Um miðjan mars 2019 var Bertheussen handtekin vegna gruns um hún hafi kveikt í bíl þeirra Wara, sem staðsettur var fyrir utan heimili þeirra, og láta það líta þannig út að glæpur hafi verið framinn. Bertheussen var ákærð fyrir brot á 115. gr. norskra hegningarlaga sem kveður á um árás á starfsemi æðstu stofnana ríkisins. Þá var hún sakfelld fyrir að hafa sent hótunarbréf til Ingvil Smines Tybring-Gjedde, öryggismálaráðherra Noregs. Saksóknari sagði að Bertheussen hafi ætlað sér að láta það líta þannig út að einhver, sem hafi álitið Wara og Bertheussen vera „rasista og/eða nasista“, hafi borið ábyrgð á íkveikjunni. Kom fram við aðalmeðferð að Bertheussen og vinkona hennar hafi farið á leiksýninguna í leikhúsi í Osló þann 24. nóvember 2018. Þar hafi hún tekið upp stóran hluta verksins á síma. Í verkinu mátti sjá nokkra leikara, af erlendum uppruna, þar sem þeir segja frá tilraunum sínum að kortleggja það sem þeir lýsa með „tengslanet kynþáttahatara“ í landinu. Blandast þar inn röð stjórnmálamanna og fólks í heimi viðskipta í Noregi. Í sýningunni voru meðal annars sýndar myndir af heimili dómsmálaráðherrans Tor Mikkel Wara. Wara var ráðherra úr röðum Framfaraflokksins, en flokkurinn hefur lengi barist gegn straumi innflytenda til Noregs og fyrir almennt hertri innflytjendastefnu. Wara var dómsmálaráðherra frá apríl 2018 til mars 2019.
Noregur Tengdar fréttir Bertheussen hafi viljað kenna aðstandendum leikrits um glæpinn Réttarhöld hófust í morgun í máli Lailu Bertheussen, sambýlisskonu Tor Mikkel Wara, fyrrverandi dómsmálaráðherra Noregs. Bertheussen er ákærð fyrir að hafa kveikt í bíl, bera ljúgvitni og hótað öðrum ráðherra í ríkisstjórn Noregs. 8. september 2020 12:08 Sagði af sér sem dómsmálaráðherra eftir íkveikju og hótanir sambýliskonu gagnvart öðrum ráðherra Tor Mikkel Wara hefur sagt af sér sem dómsmálaráðherra Noregs. Það gerði hann í kjölfar þess að sambýliskona hans kveikti í bíl hans í fyrr í mánuðinum og laug að lögreglu um hvað gerðist. 28. mars 2019 16:29 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Innlent Fleiri fréttir Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Sjá meira
Bertheussen hafi viljað kenna aðstandendum leikrits um glæpinn Réttarhöld hófust í morgun í máli Lailu Bertheussen, sambýlisskonu Tor Mikkel Wara, fyrrverandi dómsmálaráðherra Noregs. Bertheussen er ákærð fyrir að hafa kveikt í bíl, bera ljúgvitni og hótað öðrum ráðherra í ríkisstjórn Noregs. 8. september 2020 12:08
Sagði af sér sem dómsmálaráðherra eftir íkveikju og hótanir sambýliskonu gagnvart öðrum ráðherra Tor Mikkel Wara hefur sagt af sér sem dómsmálaráðherra Noregs. Það gerði hann í kjölfar þess að sambýliskona hans kveikti í bíl hans í fyrr í mánuðinum og laug að lögreglu um hvað gerðist. 28. mars 2019 16:29