Fótbolti

Thiago Silva sló HM-met hins eina og sanna Roger Milla í gær

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Thiago Silva hefur verið frábær á þessu heimsmeistaramóti.
Thiago Silva hefur verið frábær á þessu heimsmeistaramóti. Getty/Marc Atkins

Brasilíski fyrirliðinn Thiago Silva spilaði ekki aðeins frábærlega í vörn Brasilíu í sigrinum á Suður-Kóreu í gær því hann minnti líka á sig í sóknarleiknum.

Thiago Silva lagði nefnilega upp þriðja mark Brasilíu fyrir Richarlison með snilldarsendingu.

Með þessari stoðsendingu þá setti Silva nýtt HM-met.

Hann er nú sá elsti í sögu heimsmeistarakeppninnar sem hefur gefið stoðsendingu í úrslitakeppninni.

Gamla metið átti Roger Milla frá HM á Ítalíu árið 1990.

Hér erum við að tala stoðsendingar frá því að farið var að taka þær saman á HM 1970.

Milla var þá 38 ára og eins mánaða og setti bæði aldursmet með að skora og leggja upp. Milla bætti metið yfir elsta markaskorarann með því að skora líka mark á HM í Bandaríkjunum 1994.

Thiago Silva er 38 ára og tveggja mánaða og hefur sjaldan spilað betur en einmitt á þessu tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×