Eiginkona „þess stutta“ dæmd í þriggja ára fangelsi Kjartan Kjartansson skrifar 30. nóvember 2021 20:23 Emma Coronel þegar hún mætti í alríkisdóm í New York í febrúar árið 2019. AP/Mark Lennihan Emma Coronel Aispuro, eiginkona mexíkóska fíkniefnajöfursins Joaquín „þess stutta“ Guzmán var dæmd í þriggja ára fangelsi í Bandaríkjunum í dag. Hún játaði sig seka um að hafa aðstoðað Sinaloa-fíkniefnahringinn alræmda.
Fyrir alríkisdómi í Washington-borg sagðist Coronel harma þann skaða sem hún kynni að hafa valdið og bað dómarann um að fyrirgefa sér. Saksóknarar fóru fram á fjögurra ára fangelsi yfir Coronel en sátt sem hún gerði við þá fól í sér að hún félst á að láta af hendi eina og hálfa milljón dollara, jafnvirði tæpra 196 milljóna króna. Coronel játaði sig seka um samsæri um dreifingu fíkniefna, peningaþvætti og viðskipti við Sinaloa-hringinn. Gekkst hún meðal annars við því að hafa verið sendiboði á milli Guzmán og Sinaloa-gengisins þegar foringinn var í fangelsi í Mexíkó árið 2014. Þannig hjálpaði hún eiginmanni sínum að sleppa úr fangelsi í gegnum neðanjarðargöng sem glæpagengið lét grafa að klefa hans. Guzmán var handtekinn aftur í janúar árið 2016 og framseldur til Bandaríkjanna ári síðar. Hann var sakfelldur fyrir fíkniefnasmygl, samsæri, mannrán, morð og fleiri glæpi og hlaut fyrir lífstíðarfangelsi í febrúar árið 2019. Giftist Guzmán ung að árum Coronel er 32 ára gömul fyrrverandi fegurðardís sem fæddist í Bandaríkjunum. Hún giftist glæpaforingjanum Guzmán þegar hún var átján ára gömul. Hún var handtekin við komuna til Bandaríkjanna í febrúar. Lögmaður Coronel sagði að hún hefði blandast inn í heim fíkniefnasmygls þegar hún var enn undir lögaldri og að hún verðskuldaði náð dómara, að því er segir í frétt Reuters-fréttastofunnar. Saksóknarar sögðu einnig að þó að afleiðingar gjörð Coronel hafi verið miklar hafi hlutur hennar í glæpum verið takmarkaður. Hún hafi fyrst og fremst beitt sér í þágu eiginmanns síns. Eftir að hún var handtekin hafi húin fljótt axlað ábyrgð á glæpum sínum. Dómarinn sagðist hafa tekið tillit til aðstæðna Coronel og sögu þegar hann ákvað refsingu hennar, þar á meðal að hún væri nú ein með tvíbura þeirra Guzmán þar sem hann afplánar lífstíðardóm.
Mexíkó Bandaríkin Erlend sakamál Tengdar fréttir Eiginkona El Chapo handtekin í Bandaríkjunum Emma Coronel Aispuro, eiginkona hins mexíkóska eiturlyfjabaróns, Joaquín Guzmán, betur þekktur sem El Chapo, var handtekin í Virginíu í Bandaríkjunum í gær. Hún er grunuð um aðild að skipulögðu, alþjóðlegu eiturlyfjasmygli. 23. febrúar 2021 07:40 El Chapo í lífstíðarfangelsi Einn alræmdasti fíkniefnasmyglari heims, fyrrverandi leiðtogi Sinaloa-hringsins, Joaquin "El Chapo“ Guzmán, var í dag dæmdur til lífstíðar fangelsisvistar í Bandaríkjunum. 17. júlí 2019 15:45 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Innlent Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Erlent Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Erlent Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Erlent Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi Innlent Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Innlent Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Innlent Fleiri fréttir Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Sjá meira
Eiginkona El Chapo handtekin í Bandaríkjunum Emma Coronel Aispuro, eiginkona hins mexíkóska eiturlyfjabaróns, Joaquín Guzmán, betur þekktur sem El Chapo, var handtekin í Virginíu í Bandaríkjunum í gær. Hún er grunuð um aðild að skipulögðu, alþjóðlegu eiturlyfjasmygli. 23. febrúar 2021 07:40
El Chapo í lífstíðarfangelsi Einn alræmdasti fíkniefnasmyglari heims, fyrrverandi leiðtogi Sinaloa-hringsins, Joaquin "El Chapo“ Guzmán, var í dag dæmdur til lífstíðar fangelsisvistar í Bandaríkjunum. 17. júlí 2019 15:45