Southampton - Tottenham sýndur á mbl.is

Harry Kane og félagar í Tottenham sækja Southampton heim í …
Harry Kane og félagar í Tottenham sækja Southampton heim í dag. AFP/Justin Tallis

Leikur Southampton og Tottenham í 28. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu sem fram fer á St. Mary's leikvanginum í Southampton verður sýndur beint hér á mbl.is í dag en hann hefst klukkan 15.

Útsendingin hefst klukkan 14.30 með upphitun á Símanum Sport og er leikurinn sýndur á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is. Flautað er til leiks klukkan 15.

Tottenham er í fjórða sæti deildarinnar með 48 stig og í harðri baráttu um sæti í Meistaradeild Evrópu. Southampton er hins vegar neðst með 22 stig en er samt aðeins fimm stigum frá 12. sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert