Eyjakonur komust ekki í land

Breiðablik og ÍBV mætast á morgun.
Breiðablik og ÍBV mætast á morgun. mbl.is/Arnþór Birkisson

Leik Breiðabliks og ÍBV sem átti að fara fram í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta á Kópavogsvelli klukkan 14 hefur verið frestað um sólarhring þar sem leikmenn ÍBV komust ekki til lands vegna veðurs. 

Fer leikurinn þess í stað fram á morgun, sunnudag klukkan 14. Fer leikur Þróttar og ÍBV í Lengjudeild karla í fótbolta fram klukkan 14 og þá fara fram tveir handknattleiksleikir á milli Vals og ÍBV síðar í dag í Vestmannaeyjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert