Arsenal mun ekki standa í vegi fyrir markverðinum Bernd Leno, vilji hann fara frá félaginu í janúar. 90min segir frá þessu.
Enska félagið keypti Aaron Ramsdale frá Sheffield United á um 30 milljónir punda skömmu áður en félagaskiptaglugginn lokaði um síðustu mánaðarmót.
Leno byrjaði þó fyrstu þrjá leiki liðsins í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Í síðustu tveimur leikjum hefur Ramsdale þó staðið í rammanum og gert vel, haldið hreinu í báðum leikjum.
Samningur hins 29 ára gamla Leno rennur út eftir tæp tvö ár. Ekki er útlit fyrir að hann verði framlengdur.
Arsenal veitti tveimur ungum markvörðum atvinnumannasamninga á dögunum, þá Arthur Okonkwo og Karl Hein. Sá fyrrnefndi er tvítugur og sá síðarnefndi 19 ára. Félagið telur þá tilbúna til að veita Ramsdale samkeppni um stöðu aðalmarkvarðar, fari Leno.
Markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er einnig á mála hjá Arsenal. Hann er þó á láni hjá Leuven í Belgíu sem stendur.