Keira Robinson átti stórleik fyrir Skallagrím þegar liðið vann stórsigur gegn Breiðabliki í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik, Dominos-deildinni, í Borgarnesi í kvöld.
Leiknum lauk með 80:48-sigri Skallagríms en Robinson skoraði 31 stig, tók átta fráköst og gaf eina stoðsendingu.
Skallagrímur byrjaði leikinn af miklum krafti og leiddi með 15 stigum í hálfleik, 34:19. Breiðablik tókst að klóra í bakkann í þriðja leikhluta en í fjórða leikhluta skoraði Skallagrímur 29 stig gegn 14 stigum Blika.
Jessica Loera var stigahæst í liði Breiðabliks með 13 stig og sex stoðsendingar og Isabella Ósk Sigurðardóttir skoraði 12 stig og tók fjórtán fráköst.
Skallagrímur er áfram í fimmta sæti deildarinnar með 12 stig en Breiðablik er í sjötta sætinu með 6 stig.
Gangur leiksins:: 3:4, 9:8, 13:8, 17:10, 20:12, 30:14, 32:16, 34:19, 38:21, 41:26, 47:32, 51:34, 57:38, 66:45, 73:48, 80:48.
Skallagrímur: Keira Breeanne Robinson 31/8 fráköst, Sanja Orozovic 14/16 fráköst/6 stoðsendingar, Embla Kristínardóttir 8/6 fráköst, Maja Michalska 7/5 fráköst, Gunnhildur Lind Hansdóttir 7, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 6/10 fráköst, Ingibjörg Rósa Jónsdóttir 4, Aðalheiður Ella Ásmundsdóttir 2, Arna Hrönn Ámundadóttir 1.
Fráköst: 43 í vörn, 7 í sókn.
Breiðablik: Jessica Kay Loera 13/6 stoðsendingar/5 stolnir, Isabella Ósk Sigurðardóttir 12/14 fráköst, Iva Georgieva 11/7 fráköst, Telma Lind Ásgeirsdóttir 5, Eyrún Ósk Alfreðsdóttir 2, Birgit Ósk Snorradóttir 2/4 fráköst, Sóllilja Bjarnadóttir 2, Þórdís Jóna Kristjánsdóttir 1.
Fráköst: 25 í vörn, 9 í sókn.
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson, Stefán Kristinsson, Bjarki Þór Davíðsson.
Áhorfendur: 65