Hafnar öllum ásökunum um misgjörðir á K2 Kristín Ólafsdóttir skrifar 1. mars 2021 17:07 Mingma Gyalje leiddi hópinn sem komst á tind K2 í janúar, fyrstur allra að vetrarlagi. Facebook/Mingma G Nepalski fjallgöngumaðurinn Mingma Gyalje, sem ásamt hópi samlanda sinna náði fyrstur á tind K2 að vetrarlagi í janúar, fann sig í gær knúinn til að svara ásökunum gegn hópnum um ýmislegt misjafnt á leið á toppinn. Hann þvertekur meðal annars fyrir að hópurinn hafi skorið á klifurlínur í grennd við tindinn, sem fjallagarpar nota sér til aðstoðar á klifri sínu.
Mingma segir ásakanirnar flestar úr herbúðum göngumanna sem hugðust klífa K2 nú í vetur en ekki haft erindi sem erfiði. Áður hafði pakistanski fjallagarpurinn Nazir Sabir, sem klifið hefur bæði Everest og K2, sakað nepalska hópinn um að hafa skorið á línur í svokölluðum flöskuhálsi K2, og þannig mögulega stuðlað að því að John Snorri Sigurjónsson og félagar hans lentu í ógöngum við tindinn. Þeirra hefur nú verið saknað í tæpan mánuð á fjallinu og eru allir taldir af. Nazir Sabir opened pandora box about Nepali Sherpas and local journalists. Normally Expd shares rope usage, n Nepalis used ropes fixed by Ali upto C-2, in return they should have closed their ropes from bottleneck. Who is responsible ?! @EverestToday @EliaSaikaly @nimsdai pic.twitter.com/y5CFOowZvh— TheNortherner (@TheNortherner12) February 12, 2021 Mingma hefur áður tjáð sig um ásakanirnar en svarar aftur fyrir þær í ítarlegri færslu á samfélagsmiðlum í gær. „Það er sorglegt og á sama tíma fyndið að sjá viðbrögð sumra göngumanna sem eru nýkomnir heim, án þess að hafa tekist ætlunarverk sitt,“ segir Mingma í færslu sinni. Hann telur gagnrýni göngumannanna byggða á öfundsýki. „Þeir skella skuldinni á nepalska hópinn og segja að nepalskir sjerpar gætu hafa skorið á línur eftir að þeir komust á tindinn, ekki veitt réttar upplýsingar og haldið áætlun sinni leyndri.“ The SAVAGE MOUNTAIN CONTINUES..... ^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^^ It is sad and at the same time funny to see the...Posted by Mingma G on Sunnudagur, 28. febrúar 2021 Þá segir Mingma að hann og hópur hans séu þakklátir Ali Sadpara, John Snorra og Sajid Sadpara fyrir að hafa lagt línur upp að Búðum 1 í fjallinu. Mingma og félagar hafi svo lagt línur þaðan og upp að tindinum. Göngumenn sem blammeri þá nú með ásökunum hafi sjálfir notast við þessar línur. „Hvernig getur nokkur maður haldið að Nepalar myndu skera á línur, vitandi að okkar fólk væri á leið upp aftur. […] Við náðum tindinum klukkan nákvæmlega 4:43 síðdegis og snerum svo við, fullkomlega uppgefnir. Mistök hefðu getað kostað okkur lífið. Það kólnaði og kólnaði og við vorum að reyna að komast niður eins hratt og við gátum vegna þess að vindkælingin færðist í aukana. Við slíkar aðstæður, hvernig ætti göngumaður að geta skorið á línu?“ segir Mingma.
John Snorri á K2 Pakistan Tengdar fréttir Bænastund fyrir John Snorra og félaga frestað vegna veðurs Bænastund fyrir John Snorra Sigurjónsson, Muhammad Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr við Vífilsstaðavatn hefur verið frestað fram á þriðjudagskvöld vegna slæmrar veðurspár. Bænastundin átti að fara fram annað kvöld til þess að biðja fyrir félögunum. 27. febrúar 2021 22:01 Minntust Johns Snorra, Ali og Juan Pablo í Skardu Minningarathöfn fór fram í borginni Skardu í Pakistan þar sem íbúar minntust þeirra John Snorra Sigurjónssonar, Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr, en þeirra hefur verið saknað frá 5. febrúar þegar þeir reyndu að klífa K2. Pakistönsk yfirvöld tilkynntu í gær að þeir væru formlega taldir af. 19. febrúar 2021 21:48 Horfði á búlgörsku hetjuna hrapa til dauða fyrir framan nefið á sér Elia Saikaly, kanadískur kvikmyndagerðarmaður sem vinnur að heimildarmynd um leiðangur John Snorra Sigurjónssonar og samferðamanna hans á K2, lýsir taugaþrungnum augnablikum í fjallinu þegar búlgarskur göngumaður hrapaði fyrir framan nefið á honum. Sömuleiðis mistökum sem hafi mögulega bjargað lífi Saikaly og samferðamanna hans. 15. febrúar 2021 14:59 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent Fleiri fréttir Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sagrada Familia verði loks tilbúin árið 2034 Flóttamannaaðstoðinni meinað að koma birgðum til hrjáðra Fjórir menn fyrir dómara vegna hryðjuverkanna Simon Harris nýr leiðtogi Fine Gael Sjá meira
Bænastund fyrir John Snorra og félaga frestað vegna veðurs Bænastund fyrir John Snorra Sigurjónsson, Muhammad Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr við Vífilsstaðavatn hefur verið frestað fram á þriðjudagskvöld vegna slæmrar veðurspár. Bænastundin átti að fara fram annað kvöld til þess að biðja fyrir félögunum. 27. febrúar 2021 22:01
Minntust Johns Snorra, Ali og Juan Pablo í Skardu Minningarathöfn fór fram í borginni Skardu í Pakistan þar sem íbúar minntust þeirra John Snorra Sigurjónssonar, Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr, en þeirra hefur verið saknað frá 5. febrúar þegar þeir reyndu að klífa K2. Pakistönsk yfirvöld tilkynntu í gær að þeir væru formlega taldir af. 19. febrúar 2021 21:48
Horfði á búlgörsku hetjuna hrapa til dauða fyrir framan nefið á sér Elia Saikaly, kanadískur kvikmyndagerðarmaður sem vinnur að heimildarmynd um leiðangur John Snorra Sigurjónssonar og samferðamanna hans á K2, lýsir taugaþrungnum augnablikum í fjallinu þegar búlgarskur göngumaður hrapaði fyrir framan nefið á honum. Sömuleiðis mistökum sem hafi mögulega bjargað lífi Saikaly og samferðamanna hans. 15. febrúar 2021 14:59