Á ekki að vera hægt í meistaraflokksbolta Valur Páll Eiríksson skrifar 19. júlí 2021 20:00 KA menn fagna marki fyrr í sumar. Vísir/Hulda Margrét Sérfræðingar Pepsi Max stúkunnar gáfu ekki mikið fyrir varnarleik HK í fyrra marki KA gegn þeim fyrrnefndu í leik liðanna á Akureyri í gær. KA vann leikinn 2-0. Mörk breyta aðeins leikjunum og gangi leiksins. KA-menn gátu aðeins bakkað og varið sína stöðu betur en markið var ekki nógu gott af okkar hálfu, og við þurfum að skoða það, sagði Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, um markið umrædda í gær. Markið lýsti sér þannig að Ásgeir Sigurgeirsson tók á rás með boltann frá vítateig KA-manna og var kominn rétt yfir miðjulínuna þegar Atli Arnarson, úr liði HK, braut á honum og fékk að launum gult spjald. Dusan Brkovic, varnarmaður KA, tók spyrnuna, sendi boltann fram völlinn á fyrrnefndan Ásgeir sem hafði nægt svæði til að athafna sig og setja boltann í markið af vítateig. Sérfræðingum Pepsi Max stúkunnar þótti HK-menn gera leikmönnum KA full auðvelt fyrir. Klippa: KA mark „Þetta á ekki að vera hægt, í meistaraflokki, ég fullyrði það, þetta á ekki að vera hægt,“ sagði þáttstjórnandinn Guðmundur Benediktsson. „Þetta er alveg stórfurðulegt,“ sagði sérfræðingurinn Baldur Sigurðsson. „Það hefði verið gaman að hafa myndavél þarna til að sjá betur hvað gerist þarna, hver hreyfingin er hjá Ásgeiri, og hvað klikkar hjá HK, af því að þetta er alveg ótrúlegt, bara ein sending og dauðafæri,“ „Það sjá það allir ef það kemur þverhlaup eða eitthvað svoleiðis, þetta er ekkert nýtt í fótboltanum, að menn reyna einhverja svona útfærslu. En yfirleitt er hún bara stoppuð, og bara eins og þú segir; þetta á ekki að vera hægt.“ segir Baldur enn fremur. KA var að vinna sinn fyrsta sigur í fimm leikjum gegn HK-ingum í gær og situr liðið í 5. sæti deildarinnar með 20 stig, tveimur frá KR, og aðeins þremur frá Breiðabliki og Víkingi sem eru í öðru og þriðja sæti. HK er í mikilli fallbaráttu, með tíu stig í ellefta og næst neðsta sæti, þremur stigum frá öruggu sæti. Markið umrædda og umfjöllun þeirra Guðmundar og Baldurs má sjá í spilaranum að ofan. Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Pepsi Max-deild karla KA HK Pepsi Max stúkan Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir Besta upphitunin: „Finn ekki fyrir pressunni“ Skúrkurinn endaði sem hetjan FH fékk tvær sektir frá KSÍ Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ „Þú veist alveg svarið við þessu“ Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Keflavík og Aftureldingu spáð sigri í Lengjudeildunum Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Sjáðu ungar hetjur bjarga Fram og Stjörnunni Hundfúll og ýtti ungum KR-krökkum frá sér: „Ekki fallegt að sjá“ Valur sýndi Berglindi meiri áhuga en Breiðablik „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ „Það er mikill efniviður í Fram“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Uppgjör og viðtöl: Fylkir - Stjarnan 0-1 | Stjörnumenn stálu öllum stigunum „Nú verður Edda brjáluð þegar ég hitti hana næst“ Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Sjá meira
Mörk breyta aðeins leikjunum og gangi leiksins. KA-menn gátu aðeins bakkað og varið sína stöðu betur en markið var ekki nógu gott af okkar hálfu, og við þurfum að skoða það, sagði Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, um markið umrædda í gær. Markið lýsti sér þannig að Ásgeir Sigurgeirsson tók á rás með boltann frá vítateig KA-manna og var kominn rétt yfir miðjulínuna þegar Atli Arnarson, úr liði HK, braut á honum og fékk að launum gult spjald. Dusan Brkovic, varnarmaður KA, tók spyrnuna, sendi boltann fram völlinn á fyrrnefndan Ásgeir sem hafði nægt svæði til að athafna sig og setja boltann í markið af vítateig. Sérfræðingum Pepsi Max stúkunnar þótti HK-menn gera leikmönnum KA full auðvelt fyrir. Klippa: KA mark „Þetta á ekki að vera hægt, í meistaraflokki, ég fullyrði það, þetta á ekki að vera hægt,“ sagði þáttstjórnandinn Guðmundur Benediktsson. „Þetta er alveg stórfurðulegt,“ sagði sérfræðingurinn Baldur Sigurðsson. „Það hefði verið gaman að hafa myndavél þarna til að sjá betur hvað gerist þarna, hver hreyfingin er hjá Ásgeiri, og hvað klikkar hjá HK, af því að þetta er alveg ótrúlegt, bara ein sending og dauðafæri,“ „Það sjá það allir ef það kemur þverhlaup eða eitthvað svoleiðis, þetta er ekkert nýtt í fótboltanum, að menn reyna einhverja svona útfærslu. En yfirleitt er hún bara stoppuð, og bara eins og þú segir; þetta á ekki að vera hægt.“ segir Baldur enn fremur. KA var að vinna sinn fyrsta sigur í fimm leikjum gegn HK-ingum í gær og situr liðið í 5. sæti deildarinnar með 20 stig, tveimur frá KR, og aðeins þremur frá Breiðabliki og Víkingi sem eru í öðru og þriðja sæti. HK er í mikilli fallbaráttu, með tíu stig í ellefta og næst neðsta sæti, þremur stigum frá öruggu sæti. Markið umrædda og umfjöllun þeirra Guðmundar og Baldurs má sjá í spilaranum að ofan. Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max-deild karla KA HK Pepsi Max stúkan Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir Besta upphitunin: „Finn ekki fyrir pressunni“ Skúrkurinn endaði sem hetjan FH fékk tvær sektir frá KSÍ Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ „Þú veist alveg svarið við þessu“ Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Keflavík og Aftureldingu spáð sigri í Lengjudeildunum Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Sjáðu ungar hetjur bjarga Fram og Stjörnunni Hundfúll og ýtti ungum KR-krökkum frá sér: „Ekki fallegt að sjá“ Valur sýndi Berglindi meiri áhuga en Breiðablik „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ „Það er mikill efniviður í Fram“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Uppgjör og viðtöl: Fylkir - Stjarnan 0-1 | Stjörnumenn stálu öllum stigunum „Nú verður Edda brjáluð þegar ég hitti hana næst“ Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Sjá meira