„Verður ekki betra en þetta“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. janúar 2023 07:00 Mikel Arteta fagnar. Mark Leech/Getty Images „Mikið af tilfinningum, mikið af gæðum. Verður ekki betra en þetta,“ sagði sigurreifur Mikel Arteta eftir að lið hans Arsenal vann Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag. Sigurmarkið kom í uppbótartíma leiksins.
Man United er eina liðið sem hefur unnið Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni. Gestirnir mættu með laskað lið til leiks þar sem Casemiro, einn þeirra albesti leikmaður, var í leikbanni og þá voru þeir Diogo Dalot, Jadon Sancho og Anthony Martial ekki með vegna meiðsla. Það nýtti Arsenal sér og hefndi fyrir tapið á Old Trafford með vægast sagt dramatískum 3-2 sigir þar sem sigurmarkið kom í uppbótartíma. Arteta var í sjöunda himni þegar hann ræddi við blaðamenn að leik loknum. „Að koma hingað eftir nágrannaslaginn gegn Tottenham Hotspur og spila svona, gegn þessu liði er ótrúlegt. Sérstaklega í seinni hálfleik. Að vinna á þennan hátt gerir þetta enn betra.“ „Ég held að andlega og tilfinningalega séum við mjög yfirvegaðir, en rosalega ákveðnir á sama tíma. Við fórum aldrei yfir um, héldum alltaf trú og héldum áfram að gera sömu hlutian og trúðum alltaf að við gætum náð í sigur.“ Mikel Arteta was loving the late win against United pic.twitter.com/g0an97OZ1E— B/R Football (@brfootball) January 22, 2023 „Við sýndum mikla yfirvegun inn í vítateignum en boltinn vildi ekki inn, sem betur fer gerði hann það í lokin og við náðum að vinna leikinn.“ „Þetta er lið, sérstaklega þegar þeir komast yfir, sem er mjög erfitt að spila gegn. Þeir þurfa ekki mikið til að búa til færi, elska að hafa svæði til að sækja í og refsa grimmilega ef þú nýtir ekki aðgerðirnar þínar á síðasta þriðjungi. En mér fannst við meðhöndla það vel.“ „Það er hægt að tala um þroska og trú en þú þarft samt að sýna gæði og þrautseigju til að halda áfram ásamt því að hafa sjálfstraustið til að gera það. Við fórum með leikinn þangað sem við vildum og ég er mjög ánægður, strákarnir áttu það skilið. Og svo þakka ég áhorfendum því þetta var ótrúlegt kvöld með þeim.“ A sensational start for Arsenal and Mikel Arteta pic.twitter.com/DqAUgV3waX— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) January 22, 2023 „Ég tel okkur eiga skilið að vera þar sem við erum út af því hvernig við höfum spilað. Það er samt margt sem við getum gert mun betur. Það er erfitt að vinna leiki í úrvalsdeildinni, munurinn er svo lítill. Öll lið eru vel mönnuð og munu gera þér lífið leitt. Við vitum það og þurfum að undirbúa okkur undir það á hverjum degi.“
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Leik lokið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu Handbolti Uppgjör: Grindavík - Keflavík | Gulklæddir flengdu Keflvíkinga Körfubolti Joselu hetjan þegar Real Madrid fór í úrslit í enn eitt skiptið Fótbolti Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Íslenski boltinn Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Handbolti Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Enski boltinn Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Handbolti Enrique hneykslaður: „Er þér alvara?“ Fótbolti Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Handbolti Fleiri fréttir Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Eyddi öllum Liverpool-myndum Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Luton mistókst að koma sér úr fallsæti Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Sjá meira