Fjögur smit innanlands – tveir utan sóttkvíar

Sýnataka vegna Covid-19 fer fram við Suðurlandsbraut.
Sýnataka vegna Covid-19 fer fram við Suðurlandsbraut. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alls greind­ust fjögur kór­ónu­veiru­smit inn­an­lands í gær. Þar af voru tveir í sóttkví við greiningu og þar af leiðandi tveir utan sóttkvíar. Þá greind­ist eitt smit á landa­mær­un­um.

Þetta kemur fram í upplýsingum frá almannavörnum.

Annar þeirra sem greindust utan sóttkvíar var á leið frá landi og fór í PCR-próf sem reyndist jákvætt.

Vegna sam­komutak­mark­ana sem nú eru í gildi fari færri í sótt­kví þegar upp koma smit. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert