Kostnaður umfram spár, en eiginfjárstaða betri en á horfðist

Mikið þarf til að tekju- og kostnaðaráætlanir Icelandair fyrir árið 2021 haldist, en rekstrarkostnaður félagsins var töluvert hærri en það gerði ráð fyrir í hlutafjárútboðinu sínu. Þó er lausafjárstaða flugfélagsins betri en búist var við.

iceairny.jpg
Auglýsing

Rekstr­ar­kostn­aður Icelandair á milli júlí­mán­aða 2020 og 2021 var 27 pró­sent umfram spár félags­ins í fjár­festa­til­kynn­ingu sinni sam­hliða hluta­fjár­út­boð­inu sínu í fyrra­haust. Þrátt fyrir að rekstr­ar­tekjur félags­ins á nýliðnum árs­fjórð­ungi hafi auk­ist tölu­vert þurfa þær að hækka um fimmt­ung á síð­ustu mán­uðum þessa árs til að stand­ast eigin spár.

Þurfa enn meiri tekju­vöxt

Sam­kvæmt nýbirtu árs­hluta­upp­gjöri Icelandair námu rekstr­ar­tekjur félags­ins alls 258 millj­ónum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi, eða um 33 millj­örðum íslenskra króna. Þetta eru lang­mestu tekj­urnar sem flug­fé­lagið hefur fengið af starf­semi sinni frá árinu 2019, en þær eru rúm­lega tvö­falt meiri en tekj­urnar á sama tíma­bili í fyrra og rúm­lega þrefalt meiri en þær voru á öðrum fjórð­ungi þessa árs.

Auglýsing

Þó þurfa tekj­urnar að vaxa enn meira til að flug­fé­lagið stand­ist spárnar sem það setti fram sam­hliða hluta­fjár­út­boð­inu sínu í fyrra. Sam­kvæmt þeim var búist við að heild­ar­tekjur vegna rekstrar sam­stæð­unnar Icelandair Group myndu ná 637 millj­ónum dala í ár, eða um 82 millj­örðum í ár, en til þess að það mark­mið náist þurfa rekstr­ar­tekjur hennar að aukast um 20%. Tekju­þró­un­ina eftir árs­fjórð­ungum má sjá á mynd hér að neð­an.

Rekstrartekjur Icelandair frá útboði. Mynd: Kjarninn. Heimild: Icelandair.

Skuldar 3,5 millj­arða í frestaðar tekju­skatt­greiðslur

Í fjár­festa­kynn­ingu sinni í fyrra kynnti Icelandair einnig spár um rekstr­ar­kostnað félags­ins á milli júlí­mán­aða 2020 og 2021. Líkt og myndin hér að neðan sýnir var kostn­að­ur­inn hins vegar umfram spár í hverjum árs­fjórð­ungi, en hann var alls van­met­inn um 27 pró­sent á tíma­bil­inu.

Á nýliðnum árs­fjórð­ungi jókst rekstr­ar­kostn­aður félags­ins svo tölu­vert, eða úr 114 millj­ónum Banda­ríkja­dala í 217 millj­ónir dala. Búist er við að kostn­að­ur­inn auk­ist nokkuð á næsta ári, en líkt og Icelandair greinir frá í upp­gjör­inu sínu mun félagið byrja að greiða upp frestaðan tekju­skatt starfs­manna sinna í byrjun næsta árs. Alls skuldar félagið 26,8 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 4,5 millj­arða króna, rík­is­sjóð fyrir frestaðar tekju­skatts­greiðsl­ur.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Icelandair.

Lausa­fjár­staða betri en á horfð­ist

Þrátt fyrir að áætl­aður rekstr­ar­kostn­aður félags­ins hafi verið van­met­inn og að mikið þurfi til svo að spár um rekstr­ar­tekjur hald­ist hefur lausa­fjár­staða Icelandair batnað tölu­vert. Ef rík­is­á­byrgð á lánum félags­ins er talin með nemur lausa­fjár­staðan nú 454 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða um 58,7 millj­örðum króna.

Staðan hefur batnað um 123 millj­ónir dala frá síð­asta árs­fjórð­ungs­upp­gjöri. Sam­kvæmt áætl­unum Icelandair var búist við að eig­in­fjár­stað­an, að rík­is­á­byrgð­inni með­tal­inni, myndi ein­ungis nema 217 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða um 28 millj­örðum króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent