1,5 milljóna sekt fyrir að misnota gögn frá Læknafélaginu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. maí 2022 14:21 Guðjón Sigurbjartsson hefur verið framkvæmdastjóri HEI - Medical Travel frá árinu 2018. Hann hefur setið í stjórn Pírata, gegnt formennsku í félagi flokksins í Reykjavík og situr í 31. sæti listans í borginni þar sem dóttir hans Dóra Björt er oddviti. Persónuvernd hefur sektað HEI - Medical Travel um 1,5 milljón króna. Starfsmaður fyrirtækisins aflaði netfanga fjölda lækna með því að skrá sig inn á vef Læknafélags Íslands með aðgangi læknis sem tengdur var starfsmanninum. HEI - Medical Travel aðstoðar Íslendinga við að komast í fegrunar-, megrunar- og tannlæknaaðgerðir utan landsteinanna. „Markmið okkar er að auðvelda fólki að sækja sér heilbrigðisþjónustu erlendis, tímanlega og með hagkvæmum hætti,“ segir á vef fyrirtækisins sem er til húsa á Rafstöðvarvegi í Reykjavík. Í samantekt Persónuverndar um málið kemur fram að læknir nokkur hafi árið 2020 kvartað til Persónuverndar yfir öflun, skráningu, varðveislu og notkun netfangs kvartanda hjá HEI – Medical Travel (HEI). Læknirinn hafi fengið sendan markpóst í tölvupósti frá fyrirtækinu. Læknirinn sendi formlega beiðni til HEI um afrit af þeim gögnum sem fyrirtækið hefði um hann og upplýsingar um þau gögn. Ekki var orðið við þeirri beiðni svo læknirinn kvartaði yfir þeim viðbrögðum til Persónuverndar. Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu að HEI hefði ekki haft heimild til að afla sér netfangsins, skrá það, varðveita eða nota. Þá var jafnframt komist að þeirri niðurstöðu að aðgangsbeiðni kvartanda hefði ekki verið afgreidd í samræmi við lög, en persónuupplýsingum hans var eytt eftir að aðgangsbeiðnin var lögð fram. Persónuvernd lagði 1,5 milljóna króna stjórnvaldssekt á HEI - Medical Travel. Við ákvörðun sektarinnar var meðal annars horft til þess að þrátt fyrir að HEI hefði talið sér heimilt að nýta listann þá lægi ekkert fyrir í málinu sem sýndi fram á að fyrirtækið hefði gert athugasemdir við eða gengið úr skugga um að heimild stæði til öflunar netfanganna. Var brotið í öllu falli talið vera framið af stórfelldu gáleysi. Þá var einnig litið til þess að HEI eyddi persónuupplýsingum kvartanda eftir að aðgangsbeiðni barst og var réttur kvartanda til aðgangs að persónuupplýsingum sínum hjá fyrirtækinu því ekki virtur. Var því lagt til grundvallar að síðarnefnda brotið hefði verið framið af ásetningi. Sjónarmið HEI Í svörum HEI til Persónuverndar kom fram að skráning og varðveisla netfangs læknisins hefði verið mistök. HEI hefði upplýst Læknafélagið um hvernig netfangalistinn hefði veriðfenginn, starfsmaðurinn hefði gert mistök og viðurkennt þau. Þá kvaðst HEI hafa eytt netfangi kvartanda um leið og kvörtun til HEI hafi borist og að það yrði ekki notað aftur nema ef erindi bærist frá kvartanda sem réttlætti það. Persónuvernd óskaði eftir upplýsingum um hversu margir læknar hefðu verið á netfangalistanum en HEI kvaðst ekki hafa upplýsingar um það þar sem búið væri að eyða listanum. Í svörum HEI kom jafnframt fram að eftir að pósturinn hafði verið sendur hafi nokkrir læknar haft samband við HEI en aðrir haft samband við Læknafélag Íslands. Læknafélagið hafi haft samband við HEI og fyrirtækið upplýst félagið um hvernig netfangalistinn hafi verið fenginn. HEI hafi lofað Læknafélaginu að nota hann ekki aftur og við það hafi verið staðið. Læknafélagið hafi ákveðið að beita sér ekki frekar gegn HEI vegna málsins. Niðurstöðu Persónuverndar má lesa hér. Píratar Persónuvernd Heilbrigðismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Erlent Getur gosið hvenær sem er Innlent Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Innlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana Innlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Innlent Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Erlent Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Innlent Fleiri fréttir Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Getur gosið hvenær sem er Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Bandarísk þota í vandræðum lenti í Keflavík Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Framkvæmdastjórinn sagður hafa greitt sjálfum sér án heimildar Yfirvofandi eldgos, örvæntingarfull móðir og Hamraborgarþjófarnir Eiga von á öðru eldgosi Maður með kókaín í niðursuðudósum fær mildari dóm Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Öllum dómurum skipt út í milljarðamáli fyrrverandi ráðherra Skoðar róttækar breytingar á vaxtabótakerfinu Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Ráðnar aðstoðarmenn nýrrar ríkisstjórnar Átta forsetaefni klár með listana Þórhildur og Heiða María hlutu Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs Taska stútfull af milljónum króna enn ófundin Ófundin peningataska, aukin spenna í Mið-Austurlöndum og breyting á vaxtabótum Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Guðmundur H. Garðarsson fallinn frá Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Kallað út vegna eldamennsku við Stuðlaháls Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Straumhvörf í veðrinu Náttúran helsta ástæðan fyrir ferðalögum til Íslands Sjá meira
HEI - Medical Travel aðstoðar Íslendinga við að komast í fegrunar-, megrunar- og tannlæknaaðgerðir utan landsteinanna. „Markmið okkar er að auðvelda fólki að sækja sér heilbrigðisþjónustu erlendis, tímanlega og með hagkvæmum hætti,“ segir á vef fyrirtækisins sem er til húsa á Rafstöðvarvegi í Reykjavík. Í samantekt Persónuverndar um málið kemur fram að læknir nokkur hafi árið 2020 kvartað til Persónuverndar yfir öflun, skráningu, varðveislu og notkun netfangs kvartanda hjá HEI – Medical Travel (HEI). Læknirinn hafi fengið sendan markpóst í tölvupósti frá fyrirtækinu. Læknirinn sendi formlega beiðni til HEI um afrit af þeim gögnum sem fyrirtækið hefði um hann og upplýsingar um þau gögn. Ekki var orðið við þeirri beiðni svo læknirinn kvartaði yfir þeim viðbrögðum til Persónuverndar. Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu að HEI hefði ekki haft heimild til að afla sér netfangsins, skrá það, varðveita eða nota. Þá var jafnframt komist að þeirri niðurstöðu að aðgangsbeiðni kvartanda hefði ekki verið afgreidd í samræmi við lög, en persónuupplýsingum hans var eytt eftir að aðgangsbeiðnin var lögð fram. Persónuvernd lagði 1,5 milljóna króna stjórnvaldssekt á HEI - Medical Travel. Við ákvörðun sektarinnar var meðal annars horft til þess að þrátt fyrir að HEI hefði talið sér heimilt að nýta listann þá lægi ekkert fyrir í málinu sem sýndi fram á að fyrirtækið hefði gert athugasemdir við eða gengið úr skugga um að heimild stæði til öflunar netfanganna. Var brotið í öllu falli talið vera framið af stórfelldu gáleysi. Þá var einnig litið til þess að HEI eyddi persónuupplýsingum kvartanda eftir að aðgangsbeiðni barst og var réttur kvartanda til aðgangs að persónuupplýsingum sínum hjá fyrirtækinu því ekki virtur. Var því lagt til grundvallar að síðarnefnda brotið hefði verið framið af ásetningi. Sjónarmið HEI Í svörum HEI til Persónuverndar kom fram að skráning og varðveisla netfangs læknisins hefði verið mistök. HEI hefði upplýst Læknafélagið um hvernig netfangalistinn hefði veriðfenginn, starfsmaðurinn hefði gert mistök og viðurkennt þau. Þá kvaðst HEI hafa eytt netfangi kvartanda um leið og kvörtun til HEI hafi borist og að það yrði ekki notað aftur nema ef erindi bærist frá kvartanda sem réttlætti það. Persónuvernd óskaði eftir upplýsingum um hversu margir læknar hefðu verið á netfangalistanum en HEI kvaðst ekki hafa upplýsingar um það þar sem búið væri að eyða listanum. Í svörum HEI kom jafnframt fram að eftir að pósturinn hafði verið sendur hafi nokkrir læknar haft samband við HEI en aðrir haft samband við Læknafélag Íslands. Læknafélagið hafi haft samband við HEI og fyrirtækið upplýst félagið um hvernig netfangalistinn hafi verið fenginn. HEI hafi lofað Læknafélaginu að nota hann ekki aftur og við það hafi verið staðið. Læknafélagið hafi ákveðið að beita sér ekki frekar gegn HEI vegna málsins. Niðurstöðu Persónuverndar má lesa hér.
Sjónarmið HEI Í svörum HEI til Persónuverndar kom fram að skráning og varðveisla netfangs læknisins hefði verið mistök. HEI hefði upplýst Læknafélagið um hvernig netfangalistinn hefði veriðfenginn, starfsmaðurinn hefði gert mistök og viðurkennt þau. Þá kvaðst HEI hafa eytt netfangi kvartanda um leið og kvörtun til HEI hafi borist og að það yrði ekki notað aftur nema ef erindi bærist frá kvartanda sem réttlætti það. Persónuvernd óskaði eftir upplýsingum um hversu margir læknar hefðu verið á netfangalistanum en HEI kvaðst ekki hafa upplýsingar um það þar sem búið væri að eyða listanum. Í svörum HEI kom jafnframt fram að eftir að pósturinn hafði verið sendur hafi nokkrir læknar haft samband við HEI en aðrir haft samband við Læknafélag Íslands. Læknafélagið hafi haft samband við HEI og fyrirtækið upplýst félagið um hvernig netfangalistinn hafi verið fenginn. HEI hafi lofað Læknafélaginu að nota hann ekki aftur og við það hafi verið staðið. Læknafélagið hafi ákveðið að beita sér ekki frekar gegn HEI vegna málsins.
Píratar Persónuvernd Heilbrigðismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Erlent Getur gosið hvenær sem er Innlent Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Innlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana Innlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Innlent Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Erlent Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Innlent Fleiri fréttir Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Getur gosið hvenær sem er Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Bandarísk þota í vandræðum lenti í Keflavík Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Framkvæmdastjórinn sagður hafa greitt sjálfum sér án heimildar Yfirvofandi eldgos, örvæntingarfull móðir og Hamraborgarþjófarnir Eiga von á öðru eldgosi Maður með kókaín í niðursuðudósum fær mildari dóm Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Öllum dómurum skipt út í milljarðamáli fyrrverandi ráðherra Skoðar róttækar breytingar á vaxtabótakerfinu Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Ráðnar aðstoðarmenn nýrrar ríkisstjórnar Átta forsetaefni klár með listana Þórhildur og Heiða María hlutu Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs Taska stútfull af milljónum króna enn ófundin Ófundin peningataska, aukin spenna í Mið-Austurlöndum og breyting á vaxtabótum Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Guðmundur H. Garðarsson fallinn frá Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Kallað út vegna eldamennsku við Stuðlaháls Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Straumhvörf í veðrinu Náttúran helsta ástæðan fyrir ferðalögum til Íslands Sjá meira