Skoraði í fyrstu umferðinni

Jón Dagur Þorsteinsson fer vel af stað á tímabilinu.
Jón Dagur Þorsteinsson fer vel af stað á tímabilinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

AGF og Danmerkurmeistarar Bröndby gerðu í kvöld 1:1-jafntefli í 1. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði AGF og skoraði fyrsta mark liðsins á tímabilinu er hann kom því yfir strax á 10. mínútu. Hann fékk svo gult spjald á 66. mínútu og var tekinn af velli á 72. mínútu.

Landsliðsmaðurinn er á sínu þriðja tímabili með AGF en hann skoraði sjö mörk í dönsku deildinni á síðustu leiktíð og átta tímabilið á undan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert