Gefur nýjum þjálfara Breiðabliks ellefu af tíu mögulegum í einkunn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. mars 2021 11:00 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er einn fjögurra leikmanna Íslandsmeistara Breiðabliks sem eru farnir í atvinnumennsku. vísir/hulda margrét Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður Bayern München, hefur litlar áhyggjur af sínum gömlu liðsfélögum í Breiðabliki í sumar.
Blikar urðu Íslandsmeistarar í fyrra en hafa síðan þá misst ansi sterka leikmenn. Auk Karólínu eru Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Sveindís Jane Jónsdóttir og Alexandra Jóhannsdóttir farnar í atvinnumennsku og þá er markvörðurinn og fyrirliðinn Sonný Lára Þráinsdóttir hætt. „Þeir eru búnir að missa nokkur mörk,“ sagði Karólína en þær, Berglind, Sveindís og Alexandra skoruðu fjörutíu af 66 mörkum liðsins í Pepsi Max-deildinni á síðasta tímabili. „En ég hef engar áhyggjur af þessu. Það eru líka margir stórir póstar að koma inn. Það gleymist oft,“ sagði Karólína og vísaði þar til Ástu Eirar Árnadóttur, Hildar Antonsdóttur, Selmu Sólar Magnúsdóttur og Fjollu Shollu sem voru fjarverandi í fyrra vegna meiðsla og barneigna. „Þetta eru ekkert litlir leikmenn en auðvitað er erfitt að missa svona mikið og fá líka nýjan þjálfara. En ég veit að Blikar fengu geggjaðan þjálfara,“ sagði Karólína. Nýi þjálfarinn sem tók við Breiðabliki eftir að Þorsteinn Halldórsson var ráðinn þjálfari kvennalandsliðsins heitir Vilhjálmur Kári Haraldsson. Karólína þekkir hann ágætlega en hann er pabbi hennar. „Ég gef þjálfaranum ellefu af tíu mögulegum í einkunn,“ sagði landsliðskonan hlæjandi. En kom það henni á óvart að pabbi hennar skyldi taka við Breiðabliki? „Karlinn var náttúrulega hættur. En ég er ánægð með að mamma hafi leyft honum að taka allavega eitt ár. En hann er frábær þjálfari og þetta er geggjað tækifæri fyrir hann, til dæmis að sýna sig í Meistaradeildinni,“ sagði Karólína.
Pepsi Max-deild kvenna Breiðablik Mest lesið „Núna ætla ég að klára þetta þar sem þetta er síðasta tímabilið mitt hérna“ Sport Tiger trúir enn á sjálfan sig: „Líður enn eins og ég geti unnið golfmót“ Golf Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ Fótbolti „Þetta var eitt það erfiðasta sem ég hef farið í gegnum“ Sport Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Körfubolti Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Handbolti Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Enski boltinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Enski boltinn „Þetta var ótrúlega erfitt“ Fótbolti Fleiri fréttir Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Gísli lagði upp í Íslendingaslag og Elfsborg vann risasigur Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Ásdís Karen kom Lilleström á bragðið Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Gæti haldið áfram eftir allt saman FIFA íhugar að leyfa deildarleiki í öðrum löndum Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Fækka landsleikjagluggum og koma á fót HM félagsliða Segja að Mbappé og forseti PSG hafi öskrað á hvor annan Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Jói Kalli hættir hjá landsliðinu og fer til Danmerkur Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Spánarmeistarar Real skoruðu fimm „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Sjá meira