„Ég þekki þessa hluti, þetta eru ekki manneskjur“ Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 15. september 2021 17:01 Goran Kristján var harðorður í garð sakborninga, þar á meðal Angjelins Sterkaj. Vísir/Vilhelm Góðvinur og samstarfsmaður Armando Beqirai var harðorður í garð sakborninga í Rauðagerðismálinu svokallaða þegar hann bar vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann sagði sakborningana fjóra ekki manneskjur heldur hluti. „
Ég þekki alla þessa hluti, þetta eru ekki manneskjur,“ sagði Goran Kristján Stojanovic, góðvinur Armandos, sem var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði 13. febrúar síðastliðinn. Þriðji dagur aðalmeðferðar málsins fór fram í dag en vitnaleiðslum lauk laust eftir klukkan þrjú. Aðalmeðferð málsins heldur áfram á morgun, þegar vitnaleiðslum lýkur. Fjórir eru ákærðir fyrir manndráp í Rauðagerði. Angjelin Sterkaj er sakaður um að hafa skotið Armando Beqirai til bana, sem hann hefur játað en ber fyrir sig sjálfsvörn. Shpetim Qerimi, Murat Selivrada og Claudia Sofia Coelho Carvalho eru sömuleiðis ákærð hvert fyrir sinn þátt sem leiddi til þess að Armando var banað. Ekki eiginlegar hótanir milli Armando og Angjelin heldur venjuleg samskipti Albana Goran lýsti því í dag að hann hafi vitað af hótunum sem gengu á milli Armanado og Angjelin. Hann vill þó meina að um eiginlegar hótanir hafi ekki verið að ræða, svona gangi samskipti milli Albana einfaldlega fyrir sig. Armando hafi ekki verið ósáttur við Angjelin út af neinu. Aðspurður sagðist hann þekkja til Antons Kristins Þórarinssonar, sem var handtekinn í tengslum við málið í febrúar, settur í gæsluvarðhald en var ekki á meðal þeirra sem ákærðir voru í málinu. Hann hafi oft hitt Anton niðri í miðbæ, þar sem Anton hafi reglulega skemmt sér á skemmtistöðum þar sem Goran, Armando og félagar sinntu dyravörslu. „Við eigum sameiginlega vini en við erum ekki vinir. Við erum ekki óvinir, það er ekkert vesen á milli okkar,“ sagði Goran. Sagðist ekki kannast við sekt sem hann átti að hafa lagt á Anton Kristinn Angjelin sagði fyrir dómi á mánudag að Goran og Armando hafi farið fram á „sekt“ á Anton. Þeir hafi hvor um sig viljað 25 milljónir frá Antoni Kristni. Goran tók fyrir þetta í dag og sagðist ekkert kannast við þetta. Anton bar á sama veg þegar hann mætti fyrir dóm í dag. Aðspurður um það hvort Goran hafi vitað af því að Anton Kristinn hafi verið upplýsingagjafi fyrir lögreglu, sem greint var frá fyrr á þessu ári, sagði Goran það ekki hafa komið honum á óvart. Goran lýsti því jafnframt að hann hafi orðið vitni að símtali milli Armando og Angjelin á fimmtudagskvöldinu fyrir árásina. Samtalið hafi verið á albönsku og hann hafi því ekkert skilið. Nokkrum dögum síðar hafi hann fengið að vita það að Angjelin hafi hótað Armando lífláti, að hann myndi setja margar kúlur í magann á honum. Aðalmeðferð í málinu heldur áfram á morgun þegar skýrslutöku lýkur. Málflutningur mun fara fram í næstu viku.
Morð í Rauðagerði Dómsmál Reykjavík Tengdar fréttir Ellen segir fjölskyldunni sundrað vegna Rauðagerðismálsins Ellen Egilsdóttir, eiginkona Antons Kristins Þórarinssonar, sagði fyrir dómi í dag að fjölskyldu hennar hefði verið sundrað í tengslum við Rauðagerðismálið. 15. september 2021 15:12 Anton Kristinn segir ekkert til í fullyrðingu um 50 milljóna króna sekt Anton Kristinn Þórarinsson segir ekki eiga við rök að styðjast að aðilar í undirheimum hafi ætlað að sekta hann um tugi milljóna króna. Hann þvertekur fyrir að hafa vitað af fyrirætlunum Angjelin Sterkaj um að gera Armando Beqirai mein. Hefði hann vitað það hefði hann tekið fyrir það. 15. september 2021 14:34 Óku 300 kílómetra norður í land með föt og bíl fyrir Angjelin og Claudiu Rúmenskt par sem bjó við hliðina á Angjelin Sterkaj og Claudiu Sofiu Coelho Carvalho í Brautarholti 4 segja að Angjelin Sterkaj hafi oft verið með skotvopn heima hjá sér. Parið ók norður í land með bíl og föt fyrir Angjelin og Claudiu eftir að Armando Beqirai var ráðinn bani í Rauðagerði rétt fyrir miðnætti laugardagskvöldið 13. febrúar. 15. september 2021 12:12 Atlagan í Rauðagerði tók innan við mínútu Sérfræðingur í að vinna myndefni kom fyrir dóminn í Rauðagerðismálinu í dag og útskýrði hvernig hann hefði notað upplýsingar úr ólíkum áttum, svo sem eftirlitsmyndavélum og farsímagögn, til að búa til myndband sem sýnir atburðarásina laugardagskvöldið 13. febrúar þegar Armando Beqirai var ráðinn bani við heimili sitt í Rauðagerði í Reykjavík. 14. september 2021 14:20 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Fleiri fréttir Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Sjá meira
Ellen segir fjölskyldunni sundrað vegna Rauðagerðismálsins Ellen Egilsdóttir, eiginkona Antons Kristins Þórarinssonar, sagði fyrir dómi í dag að fjölskyldu hennar hefði verið sundrað í tengslum við Rauðagerðismálið. 15. september 2021 15:12
Anton Kristinn segir ekkert til í fullyrðingu um 50 milljóna króna sekt Anton Kristinn Þórarinsson segir ekki eiga við rök að styðjast að aðilar í undirheimum hafi ætlað að sekta hann um tugi milljóna króna. Hann þvertekur fyrir að hafa vitað af fyrirætlunum Angjelin Sterkaj um að gera Armando Beqirai mein. Hefði hann vitað það hefði hann tekið fyrir það. 15. september 2021 14:34
Óku 300 kílómetra norður í land með föt og bíl fyrir Angjelin og Claudiu Rúmenskt par sem bjó við hliðina á Angjelin Sterkaj og Claudiu Sofiu Coelho Carvalho í Brautarholti 4 segja að Angjelin Sterkaj hafi oft verið með skotvopn heima hjá sér. Parið ók norður í land með bíl og föt fyrir Angjelin og Claudiu eftir að Armando Beqirai var ráðinn bani í Rauðagerði rétt fyrir miðnætti laugardagskvöldið 13. febrúar. 15. september 2021 12:12
Atlagan í Rauðagerði tók innan við mínútu Sérfræðingur í að vinna myndefni kom fyrir dóminn í Rauðagerðismálinu í dag og útskýrði hvernig hann hefði notað upplýsingar úr ólíkum áttum, svo sem eftirlitsmyndavélum og farsímagögn, til að búa til myndband sem sýnir atburðarásina laugardagskvöldið 13. febrúar þegar Armando Beqirai var ráðinn bani við heimili sitt í Rauðagerði í Reykjavík. 14. september 2021 14:20