Segir vonbrigði sumra liða hafa verið það mikil að hann telji að menn hafi ekki kosið málefnalega Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. mars 2021 18:31 Páll ræddi við Gaupa í Sportpakka Stöðvar 2 í kvöld um kosninguna á ársþingi KSÍ um helgina. Stöð 2 Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, telur að ekki hafi verið um málefnalegar kosningar að ræða á ársþingi knattspyrnusambands Íslands um helgina þar sem tillaga um fjölgun leikja í efstu deild karla náði ekki í gegn.
Þá gagnrýnir Páll núverandi fyrirkomulag Íslensks Toppfótbolta ásamt því að benda á hann telji að þau lið sem létu hvað hæst í sér heyra á ársþinginu séu að reyna stytta sér leið upp í efstu deild. Viðtalið má sjá í heild sinni neðst í fréttinni. Það er ólga í knattspyrnuhreyfingunni eftir að tillaga um fjölgun leikja í deild þeirra bestu – Pepsi Max deild karla – var felld á ársþingi Knattspyrnusambandi Íslands. Þar höfðu lið í neðri deildum mikið vægi. „Það er óeðlilegt hversu mikið vægi þau hafa. Finnst alveg eðlilegt að þau hafi eitthvað vægi í þeim efnum en að þau geti stoppað það beinlínis að fjölga leikjum í efstu deild – sérstaklega í ljósi þess að það er vilji allra að fjölga leikjum – þá þarfnast endurskoðunar á því hvort það þurfi svona aukinn meirihluta allra,“ segir Páll um kosningu helgarinnar. „Það eru allir sammála um að það þurfi að fjölga leikjunum. Ég held það hafi verið einkar óheppilegt að afgreiða þetta mál svona á rafrænu ársþingi þar sem umræður voru mjög þreyttar og leiðinlegar í gegnum tölvuskjá. Ég held að niðurstöðurnar í þessari svokölluðu seinni kosningu – þar sem kosið var um tillögu um úrslitakeppni – ég held að niðurstaðan hafi endurspeglað í vonbrigðum þeirra liða sem náðu ekki sinni tillögu fram. Það er að segja um fjölgun liða.“ „Ég held þetta hafi endurspeglast í – veit ekki hvort það sé rétt að kalla það hefndaraðgerðir – en vonbrigðin voru það mikil að ég held að menn hafi ekki kosið málefnalega.“ Páll er ekki einn um þetta en formaður knattspyrnudeildar Vals er sama sinnis. Er knattspyrnuhreyfingin klofin í herðar niður í þessu máli? „Það eru mjög skiptar skoðanir. Klofningur er mjög sterkt orð en það er alveg ljóst að lið í neðri deildum halda liðum í efri deildum hálfpartinn í gíslingu í óbreyttu ástandi þó það sé skoðun allra að fjölga leikjum.“ „Þegar lið koma sér saman um það að kjósa gegn framþróun fótboltans þá segir sig sjálft að önnur lið hljóta að stíga upp á móti og klofningur er sterkt orð en það er einhver gjá,“ sagði Páll um stöðuna innan hreyfingarinnar. Aðeins þrjú íslensk lið munu taka þátt í Evrópukeppnum á næstu árum Nú munu aðeins þrjú íslensk lið eiga þátttökurétt í Evrópukeppnum í stað fjögurra eins og áður. Þetta veikir peningastöðu félaganna. „Þetta er sérstaklega slæmt þar sem við erum að endursemja núna um sjónvarpssamningana sem búa til aukið verðmæti á þeim sviðum. Það er voðalega vont að við getum ekki stigið samstíga til verks í þeim efnum og samið um þessu mikilvægu samninga því þetta skiptir bæði máli fyrir efstu deild og líka aðrar deildir og þau lið sem eiga möguleika á að komast upp. Þetta er mjög slæm staða.“ Páll segir að félögin í Pepsi Max deild karla eigi sér ekki lengur málsvara, hann sé ekki að finna hjá íslenskum Toppfótbolta. „Ég hef sjálfur gagnrýnt ÍTF verulega og ekki skilið tilgang samtakanna eins og þau hafa þróast. Eins og samtökin voru keyrð af stað á sínum tíma fyrir rétt rúmum tíu árum síðan voru þetta samtök félaga í efstu deild karla. Síðan þá hefur komið inn efsta deild kvenna sem og næstefsta deild karla og kvenna sem er þess valdandi að þar sem mestu hagsmunirnir eru undir – sem er Pepsi Max deild karla – eru liðin þar alltaf í minnihluta gagnvart öðrum liðum.“ „Hverskonar hagsmunasamtök eru það sem eiga að vera gæta hagsmuna sterkustu og stærstu félaga landsins sem er í rauninni stjórnað af neðri deildum. Við eigum öll okkar málsvara sem er knattspyrnusambandið og Toppfótbolti er hugsað sem hagsmunasamtök efstu deildar karla gagnvart knattspyrnusambandinu. Þegar öll félög sem eru með barna og unglinga eða meistaraflokksstarf eru aðilar að þessum samtökum þá þjónar það engum tilgangi.“ „Ég sagði það um daginn og stend við þið það hvenær sem er að Íslenskur Toppfótbolti þjónar engum tilgangi í dag.“ Félögin sem markaðssetja fótbolta á Íslandi eiga sér engan málsvara „Sem er mjög alvarlegt í dag. Við sjáum í þessari umræðu sem er að eiga sér stað í aðdraganda kosninganna að það eru allir í eiginhagsmunapoti. Að mörgu leyti má segja að við í Toppfótbolta eða lið í efstu deild séum í ákveðnu eiginhagsmunapoti þegar við segjum það að við viljum spila fleiri leiki, fleiri erfiða leiki og fleiri leiki á móti bestu liðum landsins.“ „Á sama tíma endurspeglast framburður þessara liða sem heyrðist hvað hæst í að stytta sér leið upp í efstu deild og það er ekki málefnalegt,“ sagði Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, að lokum í spjalli við Stöð 2 og Vísi. Klippa: Vonbrigðin voru það mikil að ég held að menn hafi ekki kosið málefnalega
Fótbolti Íslenski boltinn Sportpakkinn KSÍ KR Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ Íslenski boltinn Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi Fótbolti „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Enski boltinn Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð „Alveg ljóst að fínni blæbrigði knattspyrnurnnar þurfa að víkja“ Spila loks vestur í bæ: „Held það verði fullt í Frostaskjólinu frá hádegi“ Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Sandra María: Vil gera betur en í fyrra Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór/KA 0-4 | Óvæntur stórsigur gestanna Uppgjör og viðtöl: Breiðablik - Tindastóll 3-0 | Sannfærandi sigur Blika á kraftmiklum Stólum „Við þurfum að þekkja okkar vitjunartíma og taka færin“ Uppgjörið og viðtöl: Þróttur R. - Valur 1-2 | Amanda heldur áfram að skora „Við erum ekki að fara rúlla yfir eitt eða neitt mót“ Sharts í aðalhlutverki í endurkomusigri Stjörnunnar Uppgjörið: Víkingur R. - Fylkir 2-2 | Jafnt í nýliðaslagnum „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Víkingar fengu góða sumargjöf Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Sjá meira