Sögufrægur útvarpssjónauki sagður að hruni kominn Samúel Karl Ólason skrifar 18. nóvember 2020 23:00 Arecibo útvarpssjónaukinn í Púertó ríki er farinn að láta á sjá. Vírarnir sem halda honum uppi eru þar að auki orðnir svo gamlir að sjónaukinn gæti mögulega hrunið. AP/Danica Coto
Arecibo-útvarpssjónaukinn sögufrægi er mögulega að hruni kominn. Einn af vírunum sem heldur sjónaukanum uppi losnaði í sumar. Þegar hefja átti viðgerðir á honum gaf annar og mikilvægari vír sig. Það var þann 6. nóvember. Verkfræðingar segja víra útvarpssjónaukans mögulega úr sér gengna og er óttast að fleiri muni slitna og að sjónaukinn hrynji. Þeir sem hafa skoðað sjónaukann hafa notast við dróna og myndavélar því ekki er talið öruggt að nálgast hann vegna þess ástands sem hann er í. Sjónaukinn er einn sá stærsti í heimi og er staðsettur í frumskógi Púertó Ríkói. Hann hefur verið í notkun frá 1963 og hefur sést í kvikmyndum eins og GoldenEye og Contact. Útvarpssjónaukinn er meðal annars notaður til þess að senda útvarpsbylgjur út í geiminn og leita að smástirnum sem gætu stefnt á jörðina. Eftir að vírinn losnaði í sumar skoðuðu verkfræðingar sjónaukann og sögðu að hinir vírarnir ættu að ráða við þyngdina en útvarpssjónaukinn er um 900 tonn að þyngd. Í yfirlýsingu á vef Háskóla í Flórída sem rekur sjónaukann, UCF, segir að líklega hafi seinni vírinn skemmst yfir tíma og tekið á sig auka þyngd síðan í sumar. Burðargeta víranna hafi í raun minnkað. Hér má skemmdir sem urðu þegar einn vír losnaði í ágúst. Hann myndaði um 30 metra breitt gap í disk útvarpssjónaukans.AP/Arecibo Observatory Þeir sérfræðingar sem hafa verið fengnir til að skoða sjónaukann segja ekki hægt að tryggja að hann sé öruggur að svo stöddu. Allir þeir vírar sem séu eftir haldi nú meiri þyngd en áður og þar af leiðandi séu líkurnar á því að fleiri slitni meiri. Gerist það segja verkfræðingar líklegt að allur sjónaukinn hrynji. Í frétt Space.com segir að til hafi staðið að hefja viðgerðir á vírnum sem losnaði í sumar þegar sá seinni gaf sig í byrjun mánaðarins. Árið 2014 gaf vír sig í öflugum jarðskjálfta sem olli einnig öðrum skemmdum á útvarpssjónaukanum. Einnig átti eftir að laga hann. Hann skemmdist svo einnig árið 2017 þegar fellibylurinn María fór yfir Púertó Ríkó. Sjónaukinn er í eigu National Science Foundation og virðist sem að ekki sé búið að taka ákvörðun um hvað eigi að gera varðandi það ástand sem hefur myndast. Nokkrir möguleikar eru sagðir í boði og stendur til að taka ákvörðun á næstu dögum. Hér má sjá sjónavarpsfrétt CBS frá því í sumar eftir að fyrri vírinn gaf sig.
Púertó Ríkó Bandaríkin Geimurinn Vísindi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Erlent Halla Hrund áfram efst Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Sjá meira